Ritstjórnargreinar

Óhamingjusamir læknar

Á nýafstöðnum læknadögum var einn eftirmiðdagur tileinkaður streitu og vanlíðan lækna í starfi sínu. Þar stigu í pontu einn Norðmaður og nokkrir Íslandsmenn sem sáu um þennan dagskrárlið. Þau sýndu ótölulegan fjölda mynda úr tölvuvarpa sem færðu fundarmönnum heim sanninn um það að læknar eru upp til hópa óhamingjusöm stétt.

Sjálfur er ég búinn að lifa og hrærast meðal íslenskra lækna um árabil svo að þessar kenningar ræðumanna komu mér á engan hátt á óvart. Ég hef hlustað á dómsdagsræður kolleganna við morgun- og hádegisverðarborð Landspítala, Borgarspítala og Landakots þar sem menn viðra frjálslega eigin ófullnægju með tilheyrandi stóryrðum. Eftir að hafa hlustað af stakri athygli á þessar ræður í yfir 20 ár hef ég komist að þeirri niðurstöðu að íslenskir læknar telji sig vanmetna, þeir fái ekki nægilega greitt fyrir vinnu sína sem er alltof mikil og krefjandi og síðast en ekki síst að hjúkrunarfræðingar séu hægt og bítandi að leggja undir sig heilbrigðiskerfið. Í nýlegri könnun sem landlæknisembættið gerði á viðhorfi starfsmanna Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH) til starfs síns, spítalans og sameiningar kom þetta berlega í ljós; íslenskir spítalalæknar á LSH voru bæði óhamingjusamir og beiskir menn sem hafa hvorki nægilega mikil áhrif á stefnu sjúkrahússins né heldur eru nógsamlega upplýstir um stefnu þess.

Ég hef velt þessum dapurlegu staðreyndum fyrir mér lengi og komist að raun um að kannski sé eitthvað brogað við sjálfsímynd íslenskra lækna. Þegar menn halla sér yfir vatnsflötinn að hætti Narcissusar og verða ástfangnir af eigin spegilmynd virðist hún vera sorglega óraunhæf. Margir sjá sjálfa sig í hlutverki gamalla grískra eða nútímalegra amerískra hetjulækna sem bjarga mannslífum á bæði borð og hljóta að launum virðingu og ást þjóðar sinnar. Þessi mynd er fjarri öllum veruleika og allir læknar verða að sætta sig við að starfið er oft á tíðum hversdagslegt og stundum líður óratími án þess að menn vinni nein þau afrek sem uppi munu verða meðan land byggist.

Á sama tíma hafa væntingarnar til læknisfræðinnar aukist til muna. Vísindin eiga að geta skapað nýtt líf og trúin á þau ógna hefðbundnum trúarbrögðum mannkynsins. Guð hefur fundið sér verðugan keppinaut í nútímavísindamönnum sem hafa lokið upp og upplýst ýmsa leyndardóma tilverunnar. Mannkyninu hefur tekist að beisla ótrúlega orku í eigin þágu, bæði til góðs og ills, og er nú fært um að tortíma sjálfu sér margsinnis með kjarnorkuvopnum. Lífið er skyndilega orðið svo fyrirsjáanlegt að gömul trú á forlög eða æðri forsjá hefur farið halloka.

Læknar hafa orðið að aðlaga sig auknum kröfum á raunvísindin og þeir hafa tekið að sér hlutverk almættisins í hugum margra skjólstæðinga sinna.

Margir fyllast þó vanmetakennd gagnvart þessum kröfum og telja sig ekki geta staðið undir þeim. Þá er gripið til gamalkunnra afsakana þar sem öðrum er kennt um eigið getuleysi.

Í frægri sögu eftir Kafka er maður nokkur búsettur í dalverpi. Bæði hann og allir nágrannar hans harma mjög eigið varnar- og magnleysi í lífsbaráttunni og kenna "þeim þarna uppi" um allt saman. Það eru þeir sem stjórna og ráðskast með líf og hamingju undirsáta sinna og draga úr þeim allt þrek. Þessi óttablandna virðing gagnvart "þeim þarna uppi" lamar fólkið og gerir það ófært um að skapa sér mannsæmandi líf. Smám saman skynjar lesandinn að það er enginn þarna uppi heldur er um að ræða hugarfóstur og ímyndun fólksins sem það notar til að viðhalda eigin óhamingju og getuleysi.

Þegar landlæknisembættið birti áðurnefnda könnun sína rifjaðist þessi saga upp fyrir mér; nú eru það spítalastjórnin og sameiningin sem hafa tekið á sig hlutverk "þeirra þarna uppi" sem standa í vegi fyrir því að íslenskir læknar fái notið sín.

Í þessu samhengi má minna á nauðsyn þess að átta sig á eigin takmörkunum og gera raunhæfar væntingar og kröfur til sjálfs sín.

Í lokaerindinu í téðri umræðu á Læknadögum setti ég fram í gamni og alvöru sjö tiltölulega einföld skref sem gert gætu íslenska lækna hamingjusama ef þeir áttuðu sig á:



1. að lífið er samkeppni þar sem sá besti þarf ekki endilega að vinna.

2. að lífið utan læknisfræðinnar er bæði skemmtilegt og ótrúlega spennandi.

3. að læknar vita aldrei allt.

4. að stjórnmálamenn og blaðamenn segja ekki alltaf satt.

5. að dauðinn er bandamaður læknisins en ekki andstæðingur hans.

6. eigin takmörkunum; læknar hafa aldrei öll svörin.

7. spekinni í orðum Bobs Dylan þegar hann segir að peningar tali ekki heldur blóti. (Money does not talk, it swears.)



Þessi hollráðalisti gæti verið endalaus en mestu skiptir kannski að hætta þessu endalausa væli um "þá þarna uppi", óhóflegan vinnutíma, lélegt kaup og vaxandi völd hjúkrunarfræðinga; en fara þess í stað að axla ábyrgð á eigin hamingju og vellíðan.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica