Umræða fréttir
  • Mynd 1
  • Mynd 2

LÍ reisir orlofshús að Húsafelli

Snemma í nóvember var tekin fyrsta skóflustunga að nýju orlofshúsi sem Læknafélag Íslands hyggst reisa í landi Húsafells, nánar tiltekið að Kiðárskógum 5. Formaður og framkvæmdastjóri LÍ brugðu sér upp í Borgarfjörð og skrifuðu undir verksamning í umboði orlofsnefndar áður en sá fyrrnefndi mundaði skófluna.

Samningurinn er gerður við Eirík Jón Ingólfsson verktaka og hljóðar upp á smíði 70,8 m2 húss. Það verður einlyft timburhús á steyptum sökkli með þremur svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúskróki, rúmgóðri stofu og geymslu. Umhverfis allt húsið verður pallur sem samtals er 155 m2 að flatarmáli og að sjálfsögðu er heitur pottur greyptur ofan í hann. Hægt er að ganga út á pall úr baðherbergi beint í pottinn.

Húsið verður hið vandaðasta að allri gerð, botnplata steypt og gifsplötur í öllum veggjum sem vita að svefnherbergjum til hljóðeinangrunar. Flísar verða á forstofugólfi sem og veggjum og gólfi á baðherbergi og verða þessi gólf ásamt hluta af stofugólfi upphituð. Sérstaklega verður hugað að aðgengi fatlaðra og var húsið lengt um 30 sentimetra frá upphaflegri teikningu til þess að unnt væri að hafa allar hurðir 80 sm breiðar. Gert verður ráð fyrir þráðlausri tölvutengingu í húsinu þannig að það getur orðið "fræðasetur" lækna vetur sem sumar.

Húsið á að kosta 15 milljónir króna fullbúið en án húsgagna. Smíði þess á að ljúka um miðjan maí þannig að unnt verði að taka það í gagnið eigi síðar en 1. júní næsta sumar.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica