Umræða fréttir

Íðorð 150. Skimun

Ásgeir Theódórs, læknir, hringdi og vildi fá aðstoð við að finna heiti á sjúkdómsleit sem hann var í vafa um hvort nefna mætti skimun. Ásgeir vísar þar í svonefnda Vitundarvakningu um ristilkrabbamein sem nú nýverið var sett af stað hér á landi. Beitt verður þeirri aðferð að dreifa upplýsingum um ristilkrabbamein, einkenni þess og áhættur og hvetja fólk til þess að forðast áhættuþætti. Þá eru einstaklingar 50 ára og eldri hvattir til að þiggja skimun eftir ristilkrabbameini, einfalda rannsókn sem felst í árlegri leit að leyndu blóði í hægðum, en hægðablóð getur einmitt verið upprunnið í ristilkrabbameini.



Vitundarvakning

Vitundarvakningin er nákvæmlega það sem orðið gefur til kynna. Menn eru vaktir til meðvitundar eða vitneskju um eitthvað. Vitundarvakning um sjúkdóm þarf því hvorki að fela í sér skimun né neina aðferð til greiningar eða rannsóknar. Fræðsla ein getur verið ætluð til að vekja menn til þeirrar meðvitundar, sem vonast er eftir. Oftast fer vitundarvakning þó einnig fram með hvatningu eða ábendingu, til dæmis með því að benda á ýmis líkamleg einkenni, sem annars væri ekki fengist um, eða með því að hvetja menn til ákveðinna verka eða hegðunar.



Að skima

Sögnin að skima merkir samkvæmt Íslensku tölvuorðabókinni 1. líta í kringum sig, skyggnast um, horfa. 2. geiga frá beinni stefnu, stefna til hliðar. 3. rannsaka í smásjá. Undirritaður kannast ekki við síðasta merkingarliðinn, þrátt fyrir að hafa unnið við smásjár nær alla sína starfsævi, og finnst hann beinlínis rangur, enda á dæmið sem tekið er, gen eru skimuð í leit að stökkbreytingum, ekki við. Gen eru ekki rannsökuð með smásjárskoðun. Fyrsti merkingarliðurinn er hins vegar sá sem við á, þegar verið er að vísa í læknisfræðilega skimun.

Fyrr á árum var sögnin að skima gjarnan notuð í samsetningunum skima að einhverju eða skima eftir einhverju og merkti í báðum tilvikum það sama, svipast um í leit að einhverju. Rétt er að benda einnig á, að svipast um merkir gá að einhverju, leita einhvers lauslega. Það eru þessi tvö blæbrigði merkingar sem sögnin að skima gefur svo vel til kynna, annars vegar líta til ýmissa átta og hins vegar gá eða leita lauslega. Athygli vert er að sögnin að skima er nú gjarnan notuð með forsetningunni fyrir og þá talað um að skima fyrir einhverju.

Svo hefur farið í Íðorðasafni lækna að enska sögnin to scan hefur verið þýdd með sögninni skima. Sú þýðing virðist þó ekki hafa náð neinni útbreiðslu meðal lækna. Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs gefur merkingarnar: 1. grannskoða; virða rannsakandi fyrir sér; 2. renna augum yfir, líta yfir; 3. skipta eftir bragliðum, skiptast í bragliði; 4. skima, skanna, fara yfir með skanna. Sögnin að skanna er sú sem helst virðist hafa náð fótfestu í læknamálinu. Rétt er að vekja athygli á þessum mismun, að skanna merki helst skoða vandlega, en skima merki fremur skoða lauslega.



Screen

Ensku sögnina to screen hefur Íðorðasafn lækna þýtt með íslensku sögninni kemba. Því hefur nafnorðið screening fengið íslensku þýðinguna kembileit. Nafnorðið screen er skilrúm, skermur, net, sía, hlíf, skjár eða tjald. Hin læknisfræðilega merking sagnarinnar screen er því án efa helst í ætt við sigta, sía eða skilja frá. Undirritaður, sem kynntist fíngerðum lúsakambinum strax á barnsaldri, hefur aldrei getað sætt sig við þessa þýðingu. Honum finnst að kembileit hljóti að vera nákvæm leit, en að screening geti verið lausleg eða fremur ónákvæm og að þar eigi íslenska nafnorðið skimun best við.



Aerosol

Guðrún Sigmundsdóttir, smitsjúkdómalæknir, óskaði eftir íslensku heiti á fyrirbærið aerosol. Læknisfræðiorðabók Dorlands upplýsir að aerosol sé: 1. efnakerfi (colloid system), tegund lausnar (sol, solution), þar sem dreifiefnið (dispersion medium) er lofttegund. 2. vökvi sem geymdur er undir þrýstingi ásamt með drifefni (propellant) þannig að dreifa megi lausninni sem fínum úða. 3. lausn af lyfi sem hægt er að ýra sem fínum úða til innöndunarmeðferðar. Við skoðun kemur í ljós að Íðorðasafn lækna á ekki íslenskt heiti fyrir aerosol. Um leið sést að þýðing þess á nafnorðinu colloid, kvoðulausn, er ekki fullnægjandi því að í orðabók Dorlands kemur fram að colloid sé 1. kvoðukennt eða límkennt efni. 2. efni sem gert er úr örsmáum óuppleystum ögnum, venjulega 1-1000 nm í þvermál, sem dreifast jafnt eða svífa í samfelldu dreifiefni. Í Læknisfræðiorðabók Stedmans er tekið í sama streng. Samkvæmt þessu ætti colloid að birtast þannig í Íðorðasafninu: 1. kvoðulausn, kvoðu- eða límkennt efni. 2. sviflausn, efni gert úr örsmáum ögnum sem svífa í lausnarefninu án þess að falla.



Svifúði

Það fór svo, sem reyndar gerist ekki mjög oft í íðorðavinnunni, að undirritaður bjó til á augabragði nýyrði sem fyrirspyrjanda líkaði. Með hliðsjón af ofanrituðu varð það heitið svifúði, sem skýra má þannig: úði sviflausnar, það er úði óuppleystra efnisagna í viðeigandi dreifiefni.



Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica