Stöðuauglýsingar

Yfirlæknir heilsugæslu HVE í Grundafirði og Ólafsvík

Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir að ráða yfirlækni til starfa á heilsugæslu HVE í Grundarfirði og Ólafsvík.

Um er að ræða nýja stöðu yfirlæknis starfsstöðvanna og þarf viðkomandi að vera leiðandi í þróun og þverfaglegri samvinnu á svæðinu. Yfirlæknir heyrir undir framkvæmdastjóra lækninga í skipuriti.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirlæknir skipuleggur og samræmir þá læknisþjónustu sem er veitt og gætir þess að hún sé í samræmi við bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma.

  • Ber ábyrgð ásamt yfirhjúkrunarfræðingum að starfsemi heilsugæslustöðvanna fylgi gildandi lögum og reglugerðum.

  • Viðkomandi sinnir samskiptum við sjúklinga, aðstandendur og annað heilbrigðisstarfsfólk auk þess að sinna vísindastörfum og kennslu.

  • Ber ábyrgð á þjónustu og greiningu gagnvart sjúklingum og sér um skráningu þar að lútandi.

  • Sér um gerð vaktaáætlana og skipulag afleysinga.

  • Hefur frumkvæði að gæða- og umbótarverkefnum.

  • Hefur fjárhagslega ábyrgð skv. rekstraráætlunum og sinnir skráningu og skýrslugerð eftir því sem framkvæmdstjóri lækninga gerir kröfur um.

  • Starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningarleyfi sem og sérfræðiviðurkenning í heimilislækningum er skilyrði.

  • Starfsreynsla á sviði stjórnunar er kostur.

  • Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæði, skipulagshæfni, nákvæmni, þjónustulund og jákvæðni.

  • Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áhuga og hæfni til að vinna að aukinni samþættingu þjónustunnar og þverfaglegri teymisvinnu á svæðinu.

  • Leiðtogahæfileikar

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Góð íslenskukunnátta og almenn tölvukunnátta er skilyrði.

  • Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla ofangreind skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast til framkvæmdastjóra lækninga.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

HVE áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.

Möguleiki er á aðstoð við útvegun húsnæðis. Snæfellsnes er góður staður til að búa á, fjölskylduvænt umhverfi og stutt í mikla náttúrufegurð.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.12.2025

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Einar Sigurðsson

Framkvæmdastjóri lækninga

Tölvupóstur: sigurdur.e.sigurdsson@hve.is

Sími: 4321000

Þetta vefsvæði byggir á Eplica