Umræða fréttir

Lyfjamál 110. Blóðfitulækkandi lyf

Notkun blóðfitulækkandi lyfja af tegundinni HMG CoA redúktasa hemlar, öðru nafni statín, hefur farið ört vaxandi undanfarin tíu ár eins og sjá má á súluritum hér að neðan. Spáin fyrir 2002 byggist á sölu fyrstu níu mánaða ársins. Á tímabilinu hafa sex mismunandi statín verið á markaði hér. 1988 kom lóvastatín og 1989 pravastatín en þau hafa aldrei komist verulega í notkun. Simvastatín kom 1991 en notkun þess fór ekki að aukast verulega fyrr en 1995 eftir að fræg fjölþjóðarannsókn staðfesti gagnsemi þess. Heldur hefur dregið úr notkun þess síðustu ár eftir að atorvastatín kom á markað 1998. Það lyf virðist nú njóta ört vaxandi vinsælda. Cerívastatín kom á markað í byrjun árs 2000 en hvarf aftur á miðju næsta ári vegna óviðunandi aukaverkana án þess að ná teljanlegri sölu hér á landi.

Þrátt fyrir mikinn kostnað vegna þessara lyfja verður þessi þróun þó að teljast jákvæð því allt bendir til að nú séu þeir, sem mest þurfa á þessum lyfjum að halda, einmitt að fá þau og vaxandi notkun atorvastatíns er þar að auki hagstæð þar eð dagskammtur þess er að meðaltali ódýrastur.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica