Umræða fréttir

Broshorn 31. Af göngulagi og tætara

Við tætarann

Hjúkrunarfræðingur var að ljúka við kvöldvaktina og gekk fram á lækni sem stóð við pappírstætara og hélt á blöðum í hendinni.

"Góða kvöldið," sagði læknirinn. "Af einhverjum ástæðum hefur ritaranum mínum láðst að ganga frá þessum pappírum í dag. Getur þú ef til vill hjálpað mér með þessa vél?"

"Alveg sjálfsagt," sagði hjúkkan. Hún ræsti vélina, setti pappírinn í hana og ýtti á "start"-takkann.

"Frábært, stórkostlegt," sagði læknirinn þegar pappírinn hvarf inn í vélina. "Ég þarf víst fimm eintök af öllu saman."





Án fingra

Trésmið nokkrum tókst á einhvern óskiljanlegan hátt að saga af sér alla tíu fingurna. Hann komst á slysadeildina þar sem skurðlæknir nýkominn úr sérnámi tók á móti honum.

"Ja hérna," sagði læknirinn. "Láttu mig fá fingurna og svo skulum við sjá hvað við getum gert."

"En ég er ekki með fingurna," sagði smiðurinn.

"Ertu ekki með fingurna? Hvað meinarðu eiginlega að þú sért ekki með fingurna?" sagði læknirinn forviða. "Við erum með öll tæki og tól af bestu og fullkomnustu gerð til að fást við svona áverka. Því í ósköpunum komstu ekki með puttana með þér?"

"Kannski þú segir mér hvernig ég hefði átt að tína þá upp af gólfinu," sagði maðurinn.





Átján holur

"Mér þykir fyrir því," sagði tannlæknirinn við sjúkling sinn í símanum, "en ég get því miður ekki tekið á móti þér í dag. Ég þarf að setja í einar átján holur eftir hádegið." Síðan lagði hann símann frá sér, tók upp golfsettið og gekk út af stofunni.





Hjá barnalækninum

Barnalæknirinn fékk mikið út úr því að ræða við smáfólkið og kanna hversu vel það væri að sér í að þekkja hinu ýmsu hluta líkamans. Ungur drengur sat í kjöltu móður sinnar og læknirinn benti á eyra hans og sagði: "Er þetta nefið á þér?"

Drengurinn leit forviða á móður sína og sagði: "Ég held að við ættum að fara til einhvers annars læknis."



Mikill kláði

Heimilislæknir og hjúkrunarfræðingur sátu í biðsal á flugvelli og voru á leið á ráðstefnu. Á móti þeim sat maður sem klóraði sér alveg ofboðslega á olnboganum. "Hvað skyldi nú ama að þessum?" spurði hjúkkan og gerði sig líklega til þess að hafa áhyggjur af manninum.

"Hann er sjúklingur hjá mér. Ég get sagt þér í algjörum trúnaði að hann er illa haldinn af gyllinæð."

"Já, en af hverju er hann þá að klóra sér á olnboganum?" spurði hjúkkan.

"Hann er pólitíkus í stjórnmálaflokki þar sem menn þekkja ekki mun á olnboga og rassi."





Þrisvar í viku

Eldri maður kom á stofu til þvagfæraskurðlæknis sem hafði getið sér gott orð fyrir að liðsinna mönnum með getuleysi. Læknirinn skoðaði gamla manninn og sagði síðan: "Þú ert alveg einstaklega vel á þig kominn af áttatíu og fimm ára manni að vera. Hvers vegna komstu til mín?"

"Guðlaugur vinur minn og jafnaldri segist hafa samfarir við konu sína þrisvar í viku. Það get ég ekki sagt."

"Jú, það getur þú svo sannarlega," sagði læknirinn. "Þú getur sagst hafa samfarir eins oft í hverri viku og þér sýnist."





Alveg sérstakt göngulag

Tveir læknanemar sáu gamlan mann ganga gleiðan.

Þá sagði annar þeirra: "Það er ég viss um að þessi gamli maður er með Petry-heilkennið. Fólk með þann sjúkdóm gengur með langt bil á milli fótanna."

"Ég er ekki viss," sagði hinn, "ég gæti frekar trúað því að hann sé með Zovitski-heilkennið." Þeir ákváðu að spyrja þann gamla hvers vegna hann gengi eins og hann gerði. "Það skal ég segja ykkur en fyrst verðið þið að segja mér hvað þið hélduð að væri að mér." Svo fékk hann að heyra um Petry- og Zovitski-heilkennin.

"Nei, drengir mínir, þetta er rangt hjá ykkur báðum. Mér fannst ég þurfa að reka við en komst þá að því að ég þurfti að gera meira en það."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica