Umræða fréttir

Íðorð 136. Fyrirspurnum svarað

Margar fyrirspurnir um læknisfræðileg íðorð hafa borist í vor og sumar. Sumum hefur verið svarað beint en aðrar bíða enn úrlausnar. Skal nú gerð grein fyrir nokkrum þeim helstu.



Öndunarvélar

Ólafur Baldursson, lungnasérfræðingur, sendi tölvupóst og vildi fá umræðu um heitið öndunarvél. Íðorðasafn lækna geymir þrjú erlend orð sem telja má heiti á öndunarvél, inhalator, þýtt sem öndunartæki, inspirator, þýtt sem öndunartæki, öndunarvél og respirator, þýtt sem öndunarvél. Undirritaður hefur það á tilfinningunni að tvö þau fyrrnefndu séu nú lítið eða ekkert notuð. Hvorugt er að finna í læknisfræðiorðabók Dorlands frá árinu 2000. Þar er hins vegar heitið respirator með beinni tilvísun í annað heiti, ventilator, sem fær tvær skýringar: 1. tæki hannað til að afmarka loftið sem í gegnum það fer. 2. tæki notað við gerviöndun, venjulega við vélræna öndun. Vísað er síðan í inhaler og respirator sem samheiti. Ventilator er ekki fletta í Íðorðasafni lækna, en finnst í Ensk-íslenskri orðabók Arnar og Örlygs: 1. loftræstitæki, t.d. loftrella eða vifta, 2. sá sem kemur e-u á framfæri eða leiðir e-ð í tal. Í lok 20. pistils (Lbl, Fylgirit 41/2001, bls. 30) var spurt: "Er gerður greinarmunur á íslenskum heitum öndunarvélanna, respirator og ventilator?" Forvitnilegt væri að heyra hvort heitið ventilator sé enn í notkun.

Ólafur sagði að nú væru til ýmsar tegundir öndunarvéla og því gætu vaknað spurningar um nafngiftir. Hann hafði í bili mestan áhuga á að aðgreina invasive ventilation, þar sem oftast er um að ræða öndunarvél sem blæs í gegnum barkarennu, og non-invasive ventilation, þar sem öndunarvélin blæs í gegnum grímu á andliti sjúklings. Í fyrra tilvikinu hefur Ólafur talað um innri öndunarvél við sjúklinga sína og í því síðara um ytri öndunarvél og sagði vel skiljast. Undirritaður lagði til að binda umræðuna ekki við vélina sem slíka, heldur að tala um innri öndunaraðstoð eða innri loftun lungna annars vegar og ytri öndunaraðstoð eða ytri loftun lungna hins vegar. Fyrir þá sem áhuga kynnu að hafa má benda á að heitin ofloftun, hyperventilation, og vanloftun, hypoventilation, voru rædd í fyrrnefndum 20. pistli.



Úr heilbrigðisvísindum

Frá Þóru Gylfadóttur á Landsbókasafni - Háskólabókasafni barst örstutt fyrirspurn um þýðingar á þremur erlendum hugtökum. Gert er ráð fyrir að fyrirspurnin eigi við um almenna notkun hugtakanna.

Fyrst var það communication disorders. Í Íðorðasafni lækna er enska orðið communication þýtt með íslensku orðunum boðskipti, samskipti. Disorder er þar þýtt sem veila, truflun, en í 115. pistli (Lbl, Fylgirit 41/2001, bls. 115) kom fram að starfshópur geðlækna hefði ákveðið að nota íslenska orðið röskun. Bein þýðing verður þá samskiptaraskanir.

Þá var það population biology. Auðvelt er að finna lausn með hjálp Íðorðasafnsins. Population er þýði og biology er líffræði. Rétt er að benda á að enska orðið population er komið úr latínu þar sem populus merkir fólk. Upphaflega virðist orðið hafa verið notað um fólk eða fólksfjölda í tilteknu landi, borg eða svæði, en nú er það einnig notað í tölfræði og vistfræði um ýmiss konar samsöfn einstaklinga, dýra, jurta eða jafnvel ólífrænna hluta. Fræðigreinin þýðislíffræði fæst þó væntanlega eingöngu við athugun á lífverum.

Loks var það reproductive biology. Aftur er það Íðorðasafnið sem gefur lausnina. Lýsingarorðið reproductive- er þar þýtt með orðhlutanum æxlunar-, og setja má saman heitið æxlunarlíffræði.



Álagsmeiðsl

Í tölvupósti barst fyrirspurn um enska heitið repetitive strain injury. Samkvæmt Ensk-íslenskri orðabók Arnar og Örlygs merkir lýsingarorðið repetitive endurtekningasamur; endurtekningar-; staglkenndur. Strain merkir meðal annars áreynsla, álag, spenna, ofreynsla, ofraun, tognun. Enska orðið injury kemur fyrir á nokkrum stöðum í Íðorðasafni lækna og er oftast þýtt í samsetningum sem áverki: bakáverki, blöðruáverki, heilaáverki, kuldaáverki og starfsáverki. Einnig koma þó fyrir meiðsl: fæðingarmeiðsl, og meiðsli: nýrnameiðsli og umferðarmeiðsli. Formlegu skýringarnar eru þessar: 1. sköddun. Hver sú streita sem lífvera verður fyrir og færir úr lagi byggingu hennar eða starf og leiðir til sjúklegs ferlis. 2. meiðsli. Venjulega notað um afleiðingar þess að líkaminn verður fyrir áfalli utan frá. Úr þessu má gera mörg samsett heiti, en undirritaður hefur vanist því á liðnum árum að nota íslenska heitið álagsmeiðsl.



Dægradvölin

Í síðasta pistli voru birtar nokkrar setningar úr lýsingu séra Jóns Steingrímssonar að Eyri við Skutulsfjörð á eigin veikindum, sem hann taldi stafa af göldrum. Þær eru teknar úr bók Sigurjóns Jónssonar, læknis, Sóttarfar og sjúkdómar á Íslandi 1400-1800. Lýsing Jóns er afar mögnuð og myndræn svo af ber. Um hana segir Sigurjón: "Engum blöðum er um það að fletta, að lýsingar þessar sýna móðursýki á hæsta stigi, og mörg einkennin sköpuð af því, sem hugann fyllti öðru fremur: umhugsuninni um kvalir fordæmdra. Þar að auki hefur séra Jón bersýnilega verið kleifhuga (schizophren) og haldinn ofsóknabrjálsemi á háu stigi og þeirri heiptrækni, sem venjulega er fylgifiskur hennar, skynvillum og þráhyggju."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica