Umræða fréttir
Dreifibréf landlæknisembættisins nr. 7/2001. Tilkynning frá sóttvarnalækni
Bólusetning gegn inflúensu
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin ráðleggur að inflúensubóluefni á norðurhveli fyrir tímabilið 2001-2002 innihaldi eftirtalda stofna (WHO Weekly Epidemiological Record, 2001; 76(8): 58-61):A/Moskvu/10/99 (H3N2) - lík veira*
A/Nýju Caledoniu/20/99 (H1N1) - lík veira
B/Sichuan/379/99 - lík veira**
* A/Panama/2007/99 stofn er A/Moskvu/10/99 - lík veira
** B/Jóhannesborgar/5/99 og B/Viktoríu/504/2000 stofn eru B/Sichuan/379/99 - líkar veirur sem hafa verið notaðar í framleiðslu inflúensubóluefna.
Hverja á að bólusetja?
Alla einstaklinga eldri en 60 ára.Öll börn og fullorðna sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna- nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Starfsfólk heilbrigðisþjónustu og aðra þá sem daglega annast fólk með aukna áhættu.
Brýnt er að bólusetningu ljúki eigi síðar en í nóvemberlok.