Umræða fréttir

Broshornið: Frá tá og upp að eyrum

Saursýni

Akútvaktin er á "Bogganum" og annríki mikið eins og venjulega. Ungur aðstoðarlæknir á lyfjadeildinni tekur á móti miðaldra karlmanni með nokkurra daga sögu um niðurgang. Maðurinn er nýkominn til landsins eftir ferðalag um nokkur hitabeltislönd og orðinn slappur. Læknirinn ungi velkist ekki í neinum vafa um hvernig staðið skuli að málum. Hann tekur nákvæma sögu, framkvæmir ítarlega skoðun og biður loks um saurprufu, sem lætur ekki á sér standa. Þegar að er gáð sést greinilega ormlaga fyrirferð í skálinni, sem unglæknirinn veiðir upp sigri hrósandi en aðframkominn af óþef og setur í krukku. Það sem í krukkunni er reynist óvenjulegt. Farið er með krukkuna á kaffistofuna til að sýna starfsfólkinu, en stofan tæmist á augabragði. Pantaður er leigubíll til að fara með sýnið beint að Keldum í rannsókn. Nokkru síðar er læknirinn ungi kallaður í símann. "Góðan daginn, þetta er kollegi þinn á Keldum. Ég var að skoða sýnið, sem þú sendir áðan með leigubílnum. Það reyndist vera baunaspíra."



Hernia linea albae

Prófessor Guðmundur Thoroddsen var ágætur sögumaður. Hann kryddaði kennsluna sögum, sem vörpuðu skýrara ljósi á efnið og voru þær ekki sjaldan á kostnað hans sjálfs.

Eitt sinn var hann að uppfræða læknanema um herniur, meðal annars hernia linea albae. Sagan var af bónda, sem kom til Guðmundar og bar sig illa vegna mikilla óþæginda í ofanverðri miðlínu á kvið. Guðmundur skoðaði manninn og fann smágat í linea alba, sem hann skar í og fann netju í gatinu.

Ári síðar eða svo hitti hann bóndann og spurði um líðan hans. Bóndinn lét mjög vel af sér og Guðmundur fór fram á að sjá árangurinn af handverki sínu. "Og þegar hann fletti upp skyrtunni blasti við mér hnefastór miðlínuhernia."



Næturbrölt

Gamla konan á spítalanum var sæmilega áttuð að deginum. Á nóttunni sló út í fyrir henni og hún gerðist það óróleg, að hún hélt vöku fyrir stofufélögum sínum. Það var því nauðsynlegt að flytja hana á aðra stofu, en sjúklingarnir þar kvörtuðu einnig. Þegar upp var staðið hafði reynst nauðsynlegt að flytja gömlu konuna fjórum sinnum á milli stofa á spítalanum á einni viku - frá norðurálmunni í austur, suður og loks vesturálmuna.

Þegar yfirlæknirinn, sem sú gamla þekkti vel, kom á stofugang sat hún við gluggann og horfði hugsi út. "Veistu læknir, þessi spítali er engum líkur. Á hverri viku snýst hann um heilar 360 gráður."



Óbærilegur verkur

Sjúklingurinn var mjög illa haldinn af verk í öðrum ganglimnum öllum. Til þess að leggja áherslu á orð sín sagði hann: "Ég er með óbærilegan verk frá tá og upp að eyrum."



Úr sjúkraskýrslum

Sjúkrasaga: B. er lagður inn til endurhæfingar eftir aortalokuaðgerð á Landspítala...

...Það var sett í hann biologísk ósæðarloka en ekki venugraftar.

Skoðun við komu: Furðu brattur að sjá...

Göngudeild 03.2000: Blóðþrýstingur í dag er 138/80. Hann glopraði út úr sér að hann hefði í lengri tíma haft þurran ertingshósta.



Nóg að drekka

Æskuvinirnir Nonni og Nanni hittust á förnum vegi. Nonni horfði á vin sinn drykklanga stund áður en hann sagði: "Nanni minn, þú lítur alveg hræðilega illa út. Hvað er eiginlega að?"

"Ég er búinn að vera veikur nokkuð lengi," sagði Nanni. "Ég fór svo til læknisins um daginn og hann sagði mér að drekka gulrótarsafa eftir heitt bað."

"Ég býst ekki við að það hafi nú gert mikið gagn, eða hvað?"

"Ég verð bara að viðurkenna að ég veit það ekki" sagði Nanni. "Ég gat aldrei klárað baðvatnið."



Of feitur, eða hvað ?

Heimilislæknirinn fékk of þungan sjúkling til sín á stofuna, sem vildi fá hjálp vegna offitunnar. Læknirinn lagði mataræðis- og líkamsræktarprógramm fyrir sjúklinginn og sendi hann svo heim með hæðar- og þyngdarlínurit, þannig að hann gæti betur fylgst með því hvernig hann léttist.

Mánuði seinna kom sjúklingurinn aftur á stofuna. Læknirinn lét hann stíga á vigtina og komst þá að því, að sjúklingurinn hafði þyngst. "Líttu hérna á línuritið og líttu svo á vogina," sagði læknirinn. "Þú ert enn allt of þungur."

"Hvaða vitleysa," sagði maðurinn. "Ég er aðeins 15 sentimetrum of stuttur."



Lesendur góðir !

Sendið gjarnan í Broshornið gamansögur úr klínikinni, sögur af gömlu lærimeisturunum, bundið mál eða hvað eina, sem létt gæti lund.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica