Umræða fréttir

Lyfjamál 86: Markaðssetning lyfja og læknar

Undanfarin ár hefur heilbrigðisstarfsfólki æ oftar fundist auglýsingar á lyfseðilskyldum lyfjum ramba á barmi þess sem kalla má ósæmilegt.

Lyfjaeftirlitið fær fleiri mál en áður þar sem lyfjaauglýsingar þykja vafasamar. Mörgum blöskrar einnig hve miklum fjármunum er eytt í að kynna lyf fyrir læknum á þennan hátt. Margir telja þessa aðferð mjög villandi því oftar en ekki eru kostir tíundaðir en göllum sleppt. Einnig virðist aðgengi lyfjafyrirtækja að fjölmiðlum mjög gott og algengara en áður að við sjáum frétt um lyf sem að margra mati er ekki annað en ódýr auglýsing.

Við beinum því til heilbrigðisstarfsfólks að skoða eftirfarandi tvær heimasíður þar sem markaðssetning lyfja er tekin fyrir á nokkuð gagnrýninn hátt. Fyrri heimasíðan er frá Ástralíu en sú seinni frá Bandaríkjunum.

Ástralía

http://www.camtech.net.au/malam



MaLAM

(Medical Lobby for Appropriate Marketing)

PO Box 172 Daw Pk SA

5041 Australia



Sérlega er áhugaverð undirsíða hér þar sem raktar eru fimm ástæður fyrir því að við ættum að hafa áhyggjur af umfangi markaðssetningar lyfja.

http://www.camtech.net.au/malam/index.html

- Five good reasons to be concerned about drug promotion.



Bandaríkin

www.nofreelunch.org


Þetta vefsvæði byggir á Eplica