Umræða fréttir

Endurmenntun

Um síðustu áramót bárust Þær fréttir, að læknar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hefðu tekið upp sérstakt endurmenntunarkerfi. Byggist það á því, að vissum fjölda punkta er safnað yfir ákveðinn tíma. Svo og svo margir punktar fást fyrir samningu og flutning fyrirlestrar, svo og svo margir fyrir að sitja námskeið eða þing, innlend eða erlend. Þetta svokallaða punktakerfi hefur árum saman verið vel þekkt í Bandaríkjunum.

Tilgangurinn með þessu er sá að reyna að tryggja sem best endurmenntun lækna og er að öllu leyti lofsverður. Ekki er þó alveg ljóst um viðurlög, ef einhverjum þætti of mikið á sig lagt.

Þetta frumkvæði gaf mér tilefni til að rifja upp nokkur atriði úr sögu St. Jósefsspítala á Landakoti.

Formlegir, skráðir fræðslufundir hófust þar 2. október 1965, svonefndir laugardagsfundir, kl. 8.15 þótt stakir fundir og fyrirlestrar hafi verið haldnir þar áður.

Læknaráð var stofnað 1968, hið fyrsta á íslenskum spítala. Samhliða því var krafist 75% skyldumætingar á læknaráðsfundi og laugardagsfundi. Viðurlögin voru einföld: missir starfsleyfis á spítalanum, eða eins og segir í upprunalegu reglugerð læknaráðs: "Starfandi sérfræðingum spítalans er skylt að sækja læknaráðsfundi. Sæki þeir ekki 3/4 hluta funda yfir árið, nema forföll hamli, sem stjórn læknaráðs tekur gild, er litið svo á, að sá sérfræðingur óski eftir að hætta störfum við spítalann. Sama gildir um nefndarfundi og vikulega fundi um læknisfræðileg efni (laugardagsfundi)."

Kvaðir þessar voru augljóslega settar til þess að tryggja annarsvegar þátttöku allra lækna í starfsemi læknaráðs, en tilgangurinn með stofnun þess, var að bera faglega ábyrgð á staðli spítalans. Á þeim tíma voru ekki allir læknar Landakots, frekar en annars staðar, sammála um að þörf væri á slíkum staðli. Hinsvegar sá að tryggja eftir mætti, að læknarnir héldu menntun sinni við.

Í september 1973 samþykkti læknaráð viðauka við reglugerðina, þar sem bætt var inn skilyrði um að sérfræðingarnir "...noti nokkuð af efniviði spítalans og þá væntanlega fyrst og fremst eigin sjúklinga til rannsóknarstarfa, og er það skilyrði til þess að halda vinnuaðstöðu við sjúkrahúsið (leturbreyting GL). Þykir hæfilegt lágmark að hver læknir skili einu verki fyrir hver þrjú ár, sem hann starfar við spítalann. Skili hann fleiri verkum en einu á þriggja ára fresti, hefur hann unnið af sér þrjú ár fyrir hvert fullgilt verk, sem hann skilar. Þetta eru fullgild verk:

1. Grein birt í viðurkenndu læknariti.

2. Erindi flutt á læknaþingi.

3. Erindi flutt á almennum fundi í LR og sé það byggt á eigin efniviði en ekki yfirlitserindi... ."

Á árinu 1978 voru endurmenntunarákvæði læknaráðs endurskoðuð og tekið upp punktakerfi. Krafist var að lágmarki 100 punkta á tveimur árum.

Árið 1986 var punktakerfið endurskoðað og læknunum þá gert að safna 150 punktum á tveimur árum. Fræðslunefnd læknaráðs fylgdist reglulega með því að ákvæðin voru uppfyllt og kom aldrei til vandræða vegna þess.

Þessar hugleiðingar eru ekki skrifaðar til að gera lítið úr framtaki lækna á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, sem er hið besta mál. Vonandi leggst það ekki af við sameiningu spítalanna.

Mér fannst þó ástæða til að leggja áherslu á, að endurmenntunarkerfi var við lýði á Landakoti fyrir meir en 30 árum og punktakerfi fyrir meir en 20 árum. Mér er ekki kunnugt um, að slík ákvæði hafi verið til á neinum öðrum íslenskum spítala þá eða fyrr en nú, eða að nein önnur heilbrigðisstétt - eða yfirleitt neinir aðrir - hafi lagt svipaðar kvaðir á sjálfa sig.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica