Umræða fréttir

Broshorn 10. Af flensum og pylsum

Sjónlaus maður

Læknirinn var að ræða við mann, sem talinn var andlega vanheill. Læknirinn byrjaði á því að spyrja manninn:

"Hvað fyndist þér um það ef þú misstir annað eyrað?"

"Það væri alveg hræðilegt," sagði maðurinn.

"Gott og vel," sagði læknirinn, "en hvað fyndist þér um það ef þú misstir bæði eyrun?"

"Það væri ennþá verra. Ég yrði nánast blindur."

"Nú já," sagði læknirinn, "hvernig gætir þú orðið blindur, ef þú misstir bæði eyrun?"

"Það liggur í augum uppi. Ég gæti ekki notað gleraugun mín."



Flensa eða eitthvað annað

Ung, ljóshærð og aðlaðandi kona kemur á stofu til heimilislæknisins. Í fyrstu verður hann alveg hissa á einkennum konunnar, en nær loks áttum og segir:

"Annað hvort ertu með flensu eða með barni."

"Jæja" sagði konan, "þá hlýt ég að vera ólétt. Mér dettur ekki í hug nokkur maður sem gæti hafa smitað mig af flensu."



Af pylsum

Sjúklingurinn: "Heyrðu læknir, konan mín heldur að ég sé bilaður af því að mér líkar svo vel við pylsur."

Læknirinn: "Það þarf nú ekki að þýða að þú sért bilaður. Mér þykir líka varið í pylsur."

Sjúklingurinn: "Frábært. Má ég ekki bjóða þér heim til að skoða pylsusafnið mitt ?"



Veikur fyrir eða eftir

Tveir rúmliggjandi strákar á barnadeildinni báru saman bækur sínar. Eldri guttinn spurði: "Hvort er læknirinn þinn skurðlæknir eða hinsegin læknir?"

"Það hef ég ekki hugmynd um," svaraði hinn. "Hvernig fer maður að vita það?"

"Það er nú auðvelt," sagði sá eldri. "Varst þú veikur þegar þú komst á spítalann eða gerðu þeir þig veikan eftir að þú lagðist inn?"



Algjör hvíld

Læknirinn var að rannsaka mann sem kvartaði um svefnleysi, lystarleysi, ofþreytu og spennu.

"Ég ætla að hringja í konuna þína og segja henni að þú verðir að komast í sveitina og fá þar algjöra hvíld," sagði læknirinn.

"Ef þú vilt að ég fái algjöra hvíld ættir þú frekar að biðja hana að fara til útlanda," sagði sjúklingurinn.



Fullur?

Læknirinn var búinn að skoða sjúklinginn hátt og lágt. Hann settist við borðið sitt, klóraði sér í höfðinu og sagði:

"Símon, ég er ekki viss um að ég geti sagt þér með vissu hvað gengur að þér. Ég held reyndar að það sé áfengið."

"Ég skil," sagði sjúklingurinn. "Ég get svo sem alveg komið seinna, þegar þú ert edrú."



Brunaútkall

Slökkviliðið var kallað að hjúkrunarheimili í bænum. Brunakerfi hússins hafði farið í gang og tilkynning um eld borist beint á slökkvistöðina. Liðið var fljótt á staðinn, en sem betur fer fannst enginn eldur. Þegar farið var að kanna betur orsakir útkallsins bárust böndin að einum af eldri herrum heimilisins, en elliglöp höfðu náð tökum á honum.

"Varst þú eitthvað að eiga við þetta tæki hérna á veggnum, Alexander minn?," spurði hjúkrunarfræðingurinn og benti á brunaboða með brotið gler.

"Já, það minnir mig. Sjáðu bara, hérna stendur skrifað svo greinilega:

Brjótið glerið. Þrýstið á hnappinn!"



Í góðri þjálfun

Þegar Guðríður var búin að fara með Steina son sinn fjögurra ára gamlan til læknisins hitti hún vinkonu sína á kaffihúsi.

"Þegar Steini sá lækninn fyrst brosti drengurinn út að eyrum," sagði móðirin. "Síðan þurfti að gefa honum sprautu og þá grét hann út í eitt, varð óhuggandi og fékkst ekki til að brosa meira. Læknirinn sagði mér að brosvöðvarnir væru 17 talsins en fýlusvipsvöðvarnir 43."

Þá andvarpaði vinkonan og sagði: "Það útskýrir af hverju maðurinn minn er í svo góðri líkamsþjálfun."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica