10. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Úr penna stjórnarmanna LÍ. Hvernig líður þér í vinnunni? Hildur Jónsdóttir

Læknisstarfið gerir miklar kröfur til þess sem því sinnir. Læknirinn þarf ávallt að vera reiðubúinn að leysa flókinn vanda skjólstæðinga sinna, takast á við óvænta atburði, styðja skjólstæðinga sína og gefa af sér en auk þess að mæta þeim kröfum sem vinnustaðurinn gerir til hans.

Kulnun og siðferðislegur skaði (moral injury) eru alvarleg vandamál meðal lækna og hefur sýnt sig að ýmsir þættir tengdir vinnustað og vinnuumhverfi geta ýtt undir þau eða einkenni þeirra. Sem dæmi um slíka þætti má nefna óskilvirkni í ferlum, langa vinnudaga, árekstra á milli vinnu og einkalífs, skorti á stjórn á eigin aðstæðum og upplifun á að starfið skipti ekki máli. Einnig skipta stjórnendur og stofnanir máli. Þar sem læknar hafa raunveruleg áhrif á starfsumhverfi virðist starfsánægja vera meiri.

Ýmsar kannanir hafa verið gerðar á þessu í gegnum tíðina. Um eina slíka var fjallað um í Félagsvísindabók 2008. Þar var fjallað um samnorræna könnun sem gerð var á líðan sjúkrahúslækna á Landspítala, Karolinska sjúkrahúsinu í Svíþjóð og St. Olavs sjúkrahúsinu í Noregi. Þar komu fram marktæk tengsl á milli líðanar við vinnuskipulagstengda þætti: sjálfræði í starfi, stuðning í starfsumhverfinu og hlutverkaárekstra á vinnustaðnum.

Nýrri kannanir hafa einnig verið gerðar á meðal lækna á Íslandi, til dæmis gerði Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir könnun á vegum Læknafélags Íslands (LÍ) á líðan lækna sem hann kynnti á Læknadögum 2019. Fram kemur í umfjöllun Læknablaðsins um málið að það hafi komið Ólafi á óvart hversu margir læknar upplifi kvíða og depurð.

Að líða vel í vinnunni er gríðarlega mikilvægt þar sem vinnan skipar stóran sess í lífi okkar flestra og flest eyðum við stórum hluta tíma okkar á vinnustaðnum. Mikilvægt er að unnið sé markvisst að því að tryggja gott vinnuumhverfi og stuðning á vinnustað en til þess þurfa upplýsingar um þessa þætti að liggja fyrir.

LÍ stendur um þessar mundir fyrir könnun meðal félagsmanna sinna þar sem meðal annars eru spurningar sem snúa að vinnuumhverfi og líðan í vinnu. Til stendur að gera slíka könnun árlega og fylgjast þannig með reglulegri hætti en gert hefur verið með líðan lækna. Margar spurninganna eru þær sömu og koma fyrir í könnunum læknafélaga hinna Norðurlandanna og geta svör lækna hérlendis því gefið mikilvæga mynd af stöðu okkar í fjölþjóðlegum samanburði.

Ég vil hvetja alla félagsmenn til að gefa sér tíma til að svara könnunni!

 

Heimildir

1. West CP, Dyrbye LN, Shanafelt TD. Physician Burnout: Contributors, consequences and solutions. J Intern Med 2018; 283: 516–529.

2. Rabin S, Kika N, Lamb D et al. Moral Injuries in Healthcare Workers: What Causes Them and What to Do About Them? J Healthc Leadersh. 2023 Aug 16;15:153-160.

3. Kjartansdóttir Bergmann DL, Rafnsdóttir GL. Vinnufyrirkomulag og starfstengd líðan norrænna sjúkrahúslækna. Mér sýnist að réttur titill sé: Rannsóknir í félagsvísindum IX. Reykjavík: Félagsvísindastofnun HÍ 2008; bls 183-193.

4. Ólafur Þór Ævarsson ánægður með einlægni lækna í könnun LÍ



Þetta vefsvæði byggir á Eplica