10. tbl. 112. árg. 2026

Ritstjórnargrein

Ritstjórnargrein. Uppfærsla á alþjóðlegri skilgreiningu á hjartavöðvadrepi (myocardial infarction). Geir Hirlekar

Geir Hirlekar|hjartalæknir

doi 10.17992/lbl.2026.10.910

Fimmta alþjóðlega skilgreiningin á hjartavöðvadrepi, „Fifth Universal Definition of Myocardial Infarction“, var gefin út í ágúst 2026 og birt í European Heart Journal.1 Það er mikilvæg breyting á því hvernig hjartavöðvadrep er skilgreint, flokkað og greint. Leiðbeiningarnar voru unnar í samstarfi við European Society of Cardiology (ESC), American College of Cardiology (ACC), American Heart Association (AHA) og World Heart Federation (WHF). Markmið leiðbeininganna er að samræma greininguna betur við undirliggjandi orsök, bæta greiningu og einfalda flokkun hjartavöðvadreps.

 

Hjartaskaði og hjartadrep

Ein helsta breytingin í nýju leiðbeiningunum er skýr aðgreining á hjartavöðvaskaða (myocardial- injury) og hjartavöðvadrepi. Hækkað trópónín bendir til hjartavöðvaskaða, en það eitt og sér þýðir ekki að sjúklingur hafi fengið kransæðastíflu. Til að greina hjartavöðvadrep þarf að vera til staðar hækkað trópónín ásamt einu eða fleiru: einkenni sem samræmast blóðþurrðarástandi í hjartavöðvanum, nýjar blóðþurrðarbreytingar á hjartalínuriti eða nýir Q-takkar á hjartalínuriti. Til að staðfesta hjartavöðvadrep er síðan gerð kransæðamyndataka og/eða hjartaómskoðun.

 

Ný flokkun hjartadreps

Stærsta breytingin frá fyrri leiðbeiningum lýtur að gamla tölulega kerfinu, þar sem hjartavöðvadrep var flokkað í 1-5, en hefur nú verið skipt út fyrir þrjá klíníska flokka:

 

 

  • Frumkomið hjarta-vöðvadrep (Primary myocardial infarction) verður vegna bráðs sjúkdóms í kransæð. Algengasta orsökin er rof á æðakölkunarskellu með segamyndun en aðrar orsakir geta komið fyrir, svo sem skyndileg flysjun í kransæð (spontaneous coronary artery dissection), kransæðakrampi og kransæðasegarek. Endurþrenging í stoðneti (in-stent restenosis), segamyndun í stoðneti (stent thrombosis) og bilun í hjáveitugræðlingi meira en 30 dögum eftir inngrip falla einnig undir þennan flokk.
  • Afleitt hjartavöðvadrep (Secondary -myocardial infarction) verður þegar annað brátt ástand veldur ójafnvægi milli súrefnisþarfar og súrefnisframboðs til hjartavöðvans. Þetta getur til dæmis gerst við mjög lágan eða háan blóðþrýsting, hraðan hjartslátt, blóðleysi eða súrefnisskort. Þannig er hjartavöðvadrep aðskilið frá hjartavöðvaskaða en það getur verið undirliggjandi flæðishamlandi kransæðasjúkdómur og/eða samdráttarskerðing á hjartavöðvanum við hjartaómskoðun. Frekari myndgreining, eins og kransæðamyndataka, getur hjálpað til við greiningu.
  • Hjartavöðvadrep í kjölfar inngrips (Procedure-related myocardial infarction) tengist fylgikvillum kransæðaþræðingar eða hjartaaðgerðar. Hér er meðal annars hjartavöðvadrep sem verður í tengslum við kransæðavíkkun eða hjartaskurðaðgerð innan 30 daga frá inngripi eins og lokun hliðargreina eða bilun í hjáveitugræðlingi

 

 

Trópónín og myndgreining

Trópónín gegnir áfram lykilhlutverki við greiningu á hjartavöðvaskaða. Trópóningildið er breytilegt eftir kyni og eru konur með lægra trópóníngildi en karlar og helst þessi munur yfir allan aldur.2,3 Leggja leiðbeiningar áherslu á að nota kynbundin viðmiðunarmörk fyrir efri normalmörk trópóníns. Þetta getur hjálpað til við að draga úr kerfisbundinni vangreiningu á hjartavöðvadrepi hjá konum. Einnig er lögð meiri áhersla á hjartaómun, segulómskoðun á hjarta, tölvusneiðmynd af kransæðum og kransæðamyndatöku til að greina orsök hjartadreps.

 

Klínísk þýðing

Meginbreytingin er einfaldari og hnitmiðmiðaðri flokkun í primary, secondary og procedure-related myocardial infarction. Áhersla á aðgreiningu hjartavöðvaskaða frá hjartavöðvadrepi, kynbundin tró-pónínviðmið og aukið hlutverk myndgreiningar geta þannig stuðlað að nákvæmari greiningu, mark-vissari meðferð og betri rannsóknum á orsökum og afleiðingum hjartavöðvadreps.

 

 

Heimildir

1. Mills NL, Newby LK, Zaman S, et al. ESC, Fifth Universal Definition of Myocardial InfarctionEur Heart J. 2026:28:ehag101.

2. McEvoy JW, Tang O, Wang D, et al. Myocardial injury thresholds for 4 high-sensitivity troponin assays in U.S. adults. J Am Coll Cardiol 2023;81:2028–39.

3. Cao M, Pierce AE, Norman MS, et al. Systematic review of sex-specific high sensitivity cardiac troponin I and T thresholds. Clin Ther 2024;46:988–94.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica