10. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Læknanámið við Háskóla Íslands hlýtur alþjóðlega vottun World Federation of Medical Education
Á vordögum var stórum áfanga náð við læknadeild HÍ þegar læknanámið hlaut alþjóðlega vottun World Federation of Medical Education (wfme.org), fyrst á Norðurlöndunum. Samtökin voru stofnuð árið 1972 að tilstuðlan Heimssamtaka lækna (WMA) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) til að auka gæði læknanáms og tryggja að það uppfylli alþjóðlega vísindalega og siðfræðilega staðla.
Vottunarferlið hófst formlega árið 2023 eftir talsverðan undirbúning. Fyrst var umfangsmikilli sjálfsmatsskýrslu skilað þar sem læknanáminu var lýst frá öllum hliðum og gögn lögð fram til stuðnings því að kröfum WFME væri mætt. Í október 2025 kom alþjóðleg úttektarnefnd í þriggja daga heimsókn og ræddi við helstu hagaðila námsins – stjórnendur, kennara, nemendur og atvinnuveitendur nýútskrifaðra lækna. Einnig heimsótti hún allar helstu kennslustöðvar læknanámsins. Fyrstu (og einu!) gulu viðvörun haustsins bar upp á þann dag sem nefndin átti að taka út aðstæður á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Með snarræði var þéttri dagskrá þess dags snúið á fjarfundaform þar sem úttektarnefndin fékk meðal annars virtual tour um sjúkrahúsið. Úttektarnefndin var mjög jákvæð gagnvart læknanáminu og heimsókninni sjálfri og skilaði ítarlegri skýrslu í lok árs 2025 um námið, styrkleika þess og veikleika og hvernig það uppfyllti kröfur WFME. Nokkrar athugasemdir voru gerðar sem stjórnendur læknadeildar brugðust við og komu þeim er lúta að innviðum HÍ í ferli. Vottunin var svo í höfn nú í maí, á 150 ára afmæli læknanáms hérlendis. Því verður svo fagnað með afmælisþingi 16. desember.
Það er sérstaklega mikilvægt fyrir okkar fámenna land að fá slíka alþjóðlega viðurkenningu á innihaldi og gæðum námsins. Bæði greiðir það leið íslenskra læknakandidata að sérnámi erlendis, en vestan hafs og víðar er fyrirhugað að gera kröfur um kandídatspróf frá skóla með slíka vottun þegar sótt er um sérnám. Einnig var ferlið afar gagnlegt fyrir innra gæðastarf læknadeildar og Háskóla Íslands í heild. Læknadeild þakkar öllum sem komu að ferlinu kærlega fyrir vel unnin störf.
