10. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Bókin mín. Hlaupin, ferðalögin, listin og angistin. Hrólfur Brynjarsson
Fyrsta bókin sem kom upp í hugann er What I Talk About When I Talk About Running eftir Haruki Murakami, þar sem hann lýsir reynslu sinni af langhlaupum. Hann tengir hugrenningar sínar um hlaupin einstaklega vel við áskoranir í skapandi ferli ritlistarinnar og hvernig hækkandi aldur ýtir smám saman undir skapandi endurmat á lífshlaupinu. Þegar ég stunda mín eigin langhlaup þá verður mér æ oftar hugsað til Murakami, og ekki síst um að búa betur í haginn fyrir þá skapandi vinnu sem ég hef alltaf leitað ósjálfrátt í.
Frá götum Tokyo fór ég yfir í annað ferðalag, í bókinni Endurance: Shackleton´s Incredible Voyage eftir Alfred Lansing. Þessi bók hreif mig með sér í líklega eitt af mest krefjandi ferðalag sögunnar. Byggð á dagbókarfærslum og viðtölum, lýsir hún tilraun Shackletons til að þvera Suðurpólinn fyrstur manna, og gaf mér færi á að lifa mig inn í átakanlega ferðahagi úr horfnum heimi. Þegar skip þeirra sekkur og forsendur ferðarinnar bresta hefst meginferðalag bókarinnar. Þar er listavel sagt frá því með hvaða ráðum þeir komust til baka og það var áhugavert að sjá hvað lífsvilji og þolmörk manneskjunnar geta fleytt henni langt.
Listakonan í næstu bók var sjö ára og bjó í Mexíkó þegar Shackleton varð strandaglópur á Suðurskautslandinu. Það er bókin Frida: A Biography of Frida Kahlo eftir Hayden Herrera. Upphaflega voru það sjálfsmyndir hennar, hlaðnar heillandi táknum, sem vöktu hjá mér áleitnar spurningar, til dæmis „The Two Fridas“ (skora á ykkur að googla). Bókin greinir vel frá of stuttri ævi og lýsir því sem mótaði Fridu meðal annars pólitískt, listrænt og sem manneskju; hvernig hún miðlaði andlegum og líkamlegum sársauka í gegnum verkin sín eftir mænusótt á barnsaldri og endurteknar rúmlegur í kjölfar bílslyss, en líka hvernig hún nýtti menningararf sinn í verkum sínum, að einhverju leyti í óþökk ráðandi afla þess tíma. Bókin lýsir vel sterkri og skapandi konu, sem er önnur og meiri en sú ofureinfaldaða mynd sem oft er dregin fram, að hluta eða miklu leyti af markaðsöflum, en það er önnur saga.

Ofangreindar bækur hafa allar haft talsverð áhrif á mig, bæði við lesturinn og þegar ég rifja þær upp. Sú bók sem hafði þó mest áhrif, að minnsta kosti við sjálfan lesturinn, er Pappan och havet eftir Tove Jansson, og þá sérstaklega Mårran sem þar kemur við sögu. Ég las bókina á grunnskólaaldri og hún náði mér algerlega. Ég las hana á frummálinu og tengi ekki jafn vel við íslensku þýðinguna og hef því nöfnin á sænsku hér. Í henni segir frá Muminpappa í lífskrísu sem þráir áhugaverðara líf, hann gerist vitavörður og flytur með fjölskyldunni úr örugga Mumindalen yfir á litla eyju. Flutningurinn leggst misvel í fjölskyldumeðlimi, Lilla My er hæstánægð eins og Muminpappa, Muminmamma er hins vegar með heimþrá og Mumintrollet er hræddur við myrkrið og sjóinn. Það var tvennt sem ég tengdi sérstaklega við og setur þessa bók á þennan lista, annars vegar hversu vel Tove lýsir náttúrunni, eins og hún gerir í öllum Muminbókunum, og hins vegar Mårran, vera sem allir hræðast: þögul, hreyfir sig hægt og allt nálægt henni frýs. Bókin lýsir vel hræðslu Mumintrollets við hana en í mínum huga er Mårran ekkert annað en angistin og hræðslan við hið óþekkta. Hvernig Mumintrollet nálgast Mårran og tekst á við hana er sérlega vel skrifað, enginn spoiler hér, skora á ykkur að lesa, ef ekki fyrir ykkur þá fyrir börnin eða barnabörnin.
