0708.tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Þing norrænna svæfinga- og gjörgæslulækna í Hörpu

Þing norrænna svæfinga- og gjörgæslulækna (Scandinavian Society of Anaesthesiology and Intensive Care Medicine, SSAI) fór fram í Hörpu dagana 10.–12. júní. Þingið er haldið annað hvert ár og ferðast milli Norðurlandanna, þannig að það er haldið á Íslandi á tíu ára fresti.

Þátttakendur voru rúmlega 920 frá 50 löndum. Ríflega helmingur þeirra kom frá Norðurlöndunum en athygli vakti einnig að um 80 þátttakendur komu frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi.

Á dagskrá voru alls 42 málstofur sem spönnuðu fjölbreytt svið svæfinga- og gjörgæslulækninga og tengdra undirsérgreina. Þar var meðal annars fjallað um sið-ferðileg álitamál í gjörgæslumeðferð, flókna vöktun taugasjúklinga á gjörgæslu, notkun hjarta- og lungnavélar í bráðum veikindum (ECMO), áskoranir í fæðingarsvæfingum, meðferð sjúklinga með lang-vinna verki, sjúkraflutninga á norðurslóðum og svæfingar sjúklinga með meðfædda hjartagalla.

Vinnustofurnar voru 13 talsins. Auk þess var haldið herminámskeið um bráðar uppákomur á skurðstofu daginn fyrir þingið. Á vinnustofunum fengu þátttakendur meðal annars þjálfun í notkun ytri gangráða, öndunarvélameðferð, ómstýrðum deyfingum, ómskoðunum, ísetningu ytri hjarta- og lungnavélar og loftvegameðferð barna og fullorðinna.

Um 120 vísindaágrip voru kynnt á þing-inu og kepptu höfundar sex bestu ágripanna um vegleg peningaverðlaun. Salla Kattainen frá Finnlandi vann keppnina með erindi um útkomur finnskra gjörgæslusjúklinga í Covid-faraldrinum.

Tveir heiðursfyrirlestrar voru haldnir á þinginu. Helen Higham flutti Ásmund Laerdal-fyrirlesturinn um hlutverk svæfingalækna í að efla sjúklingaöryggi. Hún er heimsþekktur leiðtogi á sviði hermi-þjálfunar og sjúklingaöryggis. Doris Øster-gaard flutti ACTA-fyrirlesturinn um framtíð hermiþjálfunar í svæfinga- og gjörgæslulækningum, en nýleg yfirlýsing Evrópu-samtaka svæfinga- og gjörgæslulækna um hlutverk hermiþjálfunar í sérnámi svæfinga- og gjörgæslulækna ber nafn hennar.

Þá veitti Minningarsjóður Gunnars Mýrdal styrk til Ingu Láru Ingvarsdóttur sérfræðilæknis til uppbyggingar hermiþjálfunar í ísetningu ytri hjarta-og lungnavélar.

Aðild að SSAI veitir íslenskum svæfinga- og gjörgæslulæknum aðgang að öflugu alþjóðlegu samstarfsneti sem styrkir sérgreinina hér á landi. Þing af þessu tagi er mikilvæg lyftistöng fyrir Svæfinga- og gjörgæslulæknafélag Íslands og styrkir tengsl þess við norrænu systursamtökin.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica