0708.tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Norræna lungnalækningaþingið 2026 í Reykjavík

Dagana 3.-5. júní 2026 var Norræna lungna-lækningaþingið haldið í Hörpu í Reykjavík. Þingið tókst afar vel og sóttu það um 560 þátttakendur frá 23 löndum. Á þinginu kom saman þverfaglegur hópur sérfræðinga á sviði lungnalækninga, læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar, lyfjafræðingar og öflugir vísindamenn. Þingið var skipulagt af Félagi íslenskra lungna-lækna, Fagdeild lungnahjúkrunar og lungnasjúkraþjálfara og bauð upp á fjöl-breytta og metnaðarfulla dagskrá.

Á þinginu voru málþing og vinnustofur þar sem fjallað var um fjölmörg málefni tengd lungnasjúkdómum, má þar nefna astma, langvinna lungnateppu, lungnatrefjun, lungnakrabbamein, lungnaháþrýsting, svefn- og öndunarvandamál, lungnasýkingar, lungnaskipti, endurhæfingu og inngrip til greiningar og meðferðar. Þá voru sérstakar dagskrárlínur tileinkaðar lungnahjúkrun og lungnasjúkraþjálfun, sem undirstrikar mikilvægi þverfaglegrar samvinnu í meðferð og endurhæfingu einstaklinga með lungnasjúkdóma og öndunarbilun.

Á þinginu voru einnig kynnt fjölmörg vísindaágrip og rannsóknarverkefni frá Norðurlöndum og víðar. Ágripafundir og veggspjaldakynningar gáfu rannsakendum, sérnámslæknum og ungu vísindafólki tækifæri til að kynna niðurstöður sínar og efla alþjóðlegt samstarf.

Mikil umræða fór fram um ávinning og vandamál tengd skimun fyrir lungnakrabbameini. Í Bandaríkjunum og Bretlandi er skimun hafin. Ekkert Norðurlandanna hefur tekið upp skimun á landsvísu en skimunarverkefni eru í gangi.

Forvarnir gegn notkun nikótíns og notkun rafretta og nikótínpúða voru áberandi í vísindadagskránni. Það er verulegt áhyggjuefni að notkun nikótíns hjá börnum og ungmennum er meiri á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Nikótín er eitt af mest ávanabindandi efnum sem til eru og hefur áhrif á þróun heilastarfsemi ásamt skaðlegum áhrifum á lungu og æðakerfi.

Norræna lungnalækningaþingið 2026 markaði mikilvægan áfanga fyrir lungnalækningar á Íslandi og styrkir tengsl okkar við fagfólk á Norðurlöndum og víðar. Sterk tengsl og samvinna eru ein af ástæðum þess að við getum veitt einstaklingum með lungnavanda þjónustu og sérhæfða meðferð á heimsmælikvarða. Þingið staðfesti enn fremur mikilvægi þverfaglegrar nálgunar, nýsköpunar og rannsókna til að bæta greiningu, meðferð og lífsgæði einstaklinga með lungnasjúkdóma.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica