0708.tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Hornsteinn að Landspítala lagður fyrir 100 árum

Í kjölfar stjórnarskrárbreytingar 19. júní 1915, sem staðfesti kosningarétt og kjörgengi kvenna til Alþingis, komu hópar kvenna að stofnun fjáröflunarsjóðs til styrktar stofnun almenns spítala fyrir landið allt. Þannig vildu þær þakka fyrir fengin réttindi, beita sínum áhrifum og vekja áhuga stjórnvalda, löggjafans og lands-manna á stofnun spítalans.1

Þann 15. júní 1926 var síðan lagður hornsteinn að byggingu Landspítala í heimsókn Kristjáns X og Alexandrínu drottningar hans. Alexandrína drottning lagði hornsteininn. Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, teiknaði spítalann.2

Sama ár var St. Jósefsspítali vígður, þann 5. september 1926, og stóðu St. Jósefs-systur kaþólska safnaðarins að baki þeirri byggingu. Spítalinn starfaði allt til ársins 2011, í 85 ár með ýmsum breytingum en þar er nú starfrækt svonefnt Lífsgæðasetur þar sem hafa aðsetur fjölmörg heilsutengd fyrirtæki og félagasamtök.3,4

Heimildir

1. Þórdís Sigurðardóttir. Landspítalinn, óskabarn íslenskra kvenna. 19. júni – tímarit Kvenréttindafélags Íslands.2014; 63:78-82.

2. Síra Þorvarður Guðjónsson og Anna Stefánsdóttir á Stað í Súgandafirði. Óðinn-7.-12. tölublað 1926:61.

3. Ásgeir Guðmundsson. Saga Hafnarfjarðar 1908-1983. Skuggsjá, Reykjavík 1984.

4. Fréttir. Læknablaðið. 1926:8-9;136.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica