03. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Úr penna stjórnarmanna LÍ. Kristrún Frostadóttir, láttu verkin tala. Gunnar Þór Geirsson
„Fastur heimilislæknir fyrir þig“ er grein sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði í nóvember 2024 fyrir alþingiskosningar sem voru á næsta leiti. Setti hún það markmið efst á blað af fimm þjóðarmarkmiðum Samfylkingar í heilbrigðismálum. Einnig setti hún tímamörk fyrir það markmið, eða tíu ár.
Er þetta raunhæft markmið? Svarið við því er já, það er raunhæft.
Það er raunhæft af því að íslenskir heimilislæknar hafa af framsýni byggt upp sérnám í heimilislækningum á Íslandi. Frumkvöðlar og hugsjónamenn í faginu lyftu grettistaki í kringum aldamótin og rituðu marklýsingu sem sérnámið byggir á og er grunnurinn að sérnáminu. Vinna sem var að miklu leyti unnin í sjálfboðavinnu og verður seint fullþökkuð.
Sérnám í heimilislækningum var fyrsta sérnámið í læknisfræði sem hægt var að taka alfarið á Íslandi. Því hefur vaxið fiskur um hrygg og vinsældir þess hafa aukist með ári hverju. Nú er svo komið að fjöldi sérnámslækna er rúmlega eitthundrað.
Stjórnvöld hafa þó aldrei stutt sérnámið sem skyldi. Heilsugæslur og heil-brigðisstofnanir út um allt land hafa tekið á sig aukakostnað við að mennta sérnámslækna í heimilislækningum. Það fylgja því nefnilega skyldur að hafa sérnámslækni. Sérnámslæknir þarf að hafa sérfræðing í heimilislækningum sem mentor. Mentor þarf að sitja námskeið og viðhalda þekkingu sinni reglulega. Það þurfa að vera reglulegir fundir, yfirferð og skráning til að tryggja að sérnámið gangi vel fyrir sig. Allt þetta tekur tíma, tíma frá móttöku sem heilsugæslan greiðir fyrir en ekki stjórnvöld.
Kennslustjórar sérnáms hafa síðan yfirsýn yfir sérnám hvers og eins heimilislæknis. Skipuleggja námsblokkir, spítalarótasjónir, rannsóknarverkefni og tryggja það að námsframvinda sé í samræmi við marklýsingu og að námslæknir uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til hans. Allt í þeim tilgangi að búa til öflugan og frambærilegan heimilislækni.
En nú er sérnám í heimilislækningum í vandræðum. Fjöldi kennslustjóra er í engu samræmi við fjölda sérnámslækna. Stöðugildi kennslustjóra er nú 1,5 stöðugildi. Samkvæmt norrænum viðmiðum ætti stöðugildi kennslustjóra að vera á bilinu 3,5-4 stöðugildi. Fjöldi kennslustjóra nær því ekki einu sinni helmingi af viðmiðum nágrannaþjóða.
Sem mentor og kennslustjóri við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hef ég greinilega orðið var við að kennslustjórar ná ekki að sinna sínu hlutverki. Ekki er við kennslustjóra að sakast sem gera sitt besta í erfiðri stöðu.
Gæði og gott utanumhald hefur verið styrkur sérnámsins frá upphafi og hvað stærsti þátturinn í vinsældum þess. Þessi gæði eru ekki lengur til staðar þegar kennslustjórar ná ekki að sinna hlutverki sínu. Árangur síðustu ára og áratuga er í hættu. Það tekur langan tíma að byggja upp traust og gæði en skamman tíma að glata.
Nú er boltinn hjá ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og hennar heilbrigðisráðherra Ölmu Möller. Ætlið þið að stuðla að öflugu sérnám í heimilislækningum með nauðsynlegum fjölda kennslustjóra?
Var ykkur alvara þegar þið settuð ykkur það markmið að tryggja öllum Íslendingum heimilislækni eftir tíu ár?
Ef svo er, þá er forsenda þess öflugt og gott sérnám í heimilislækningum. Önnur leið er ekki fær.
Kristrún Frostadóttir og Alma Möller, þið kennið ykkur við verkstjórn. Látið þá verkin tala.
