03. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Málþing til heiðurs Kristjáni Erlendssyni, sérfræðilækni í lyflækningum og klínískri ónæmisfræði

Nú líður að starfslokum Kristjáns Erlendssonar á Landspítala, en hann er kominn á 77. aldursár. Honum til heiðurs var því haldið málþing þann 30. janúar síðastliðinn. Allt frá heimkomu úr námi frá Yale, New Haven, Connecticut í Bandaríkjunum árið 1985, hefur hann verið tengdur kennslu læknanema samhliða lækningum. Hann var kennslustjóri læknadeildar Háskóla Íslands í 31 ár, 70 ára þegar hann lauk því starfi. Hann hefur því tekið virkan þátt í þróun og breytingum læknanáms á Íslandi, til lengri tíma sem kennslustjóri og á tímabili sem varaforseti læknadeildar.

Hans áhugi innan ónæmisfræðinnar hefur tengst komplement-þáttum ónæmiskerfisins. Prófessor Peter Garred, einnig sérfræðingur í klínískri ónæmisfræði, hélt heiðurserindi um komplementkerfið og vegsemd þess í meðferð sjúkdóma fram til þessa dags, sjá viðtal í þessu tölublaði Læknablaðsins.

Gerður Gröndal gigtarlæknir hélt erindi um Kristján sem gigtarlækni og Björn Rúnar Lúðvíksson, sérfræðingur í ónæmisfræði, um störf Kristjáns á ónæmisfræðideild Landspítala. Þorbjörn Jónsson, yfirlæknir ónæmisfræðideildar, færði honum síðan þakkir frá deildinni með blómvendi. Guðmundur Þorgeirsson, fyrrverandi forseti læknadeildar, hélt erindi um kennsluþátt Kristjáns og að lokum hélt Jón Finnbogason, fyrrverandi formaður Gerplu, erindi um aðkomu Kristjáns að uppbyggingu fimleikafélagsins Gerplu í Kópavogi, þar sem allir meðlimir fjölskyldu Kristjáns voru virkir þátttakendur, og víðfeðmu starfi Kristjáns með Fimleikasambandi Íslands (FSÍ) og Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ). Jón varpaði þar fram hinni hlið -Kristjáns sem sennilega ekki margir læknar þekkja til. Kristján skartar gullmerki Gerplu, FSÍ og ÍSÍ og hefur verið kjörinn heiðursfélagi Gerplu og FSÍ og eru sennilega fáir, ef nokkrir, sem geta státað af slíkum virðingarvotti innan fimleikanna. Auk alls þessa á Kristján feril sem saxófónleikari og tók þátt í „Leitin að týndu kynslóðinni“ í Hollywood í Reykjavík á sínum tíma.

En fréttir herma að Kristján sé ekki alveg hættur.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica