03. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Dagur í lífi læknis. Dagur í lífi sérnámsgrunnslæknis í héraði. Diljá Hilmarsdóttir
07:15 Fyrsta vekjaraklukkan hringir. Slekk á henni og sný mér yfir á hina hliðina, vitandi mætavel að það hringir önnur eftir fimm mínútur.
07:20 Næsta vekjaraklukka hringir. Tek upp símann og gef mér örfáar mínútur í að skoða helstu samfélagsmiðla. Virðist ekki hafa misst af neinu merkilegu í nótt frekar en aðrar nætur, samt mikilvægar fimm mínútur.
07:25 Staulast fram úr, klæði mig og fer inn á bað til að hafa mig til. Mikið sakna ég þess að fá heitan kaffibolla með flóaðri haframjólk frá unnustanum eins og hann færir mér alla morgna heima. Er frekar nýbyrjuð að drekka kaffi og því mjög kröfuhörð, hef ekki lagt í að læra á uppáhellingarvélina í íbúðinni minni hér fyrir vestan og kýs því frekar að sleppa morgunkaffinu.
07:50 Opna dyrnar fram á gang á sama tíma og Helga vinkona mín sem býr í íbúðinni á móti. Mikil stemning að vera í héraði með bestu vinkonu minni. Örkum af stað í vinnuna, sem betur fer snjóaði í nótt, vona bara að það bæti í svo það verði loksins hægt að fara á skíði.
8:00 Morgunfundur lækna, þau sem voru á vaktinni yfir helgina rapportera innlögnum. Það hefur verið nóg að gera hjá þeim og virðast þau því ansi buguð. Finn smá stress og spennu hellast yfir mig þar sem ég er með vaktina í dag, verður fróðlegt að sjá hvað hún býður upp á.
8:20-9:29 Ekkert að frétta á vaktinni svo ég kynni mér hitt og þetta á internetinu, les fréttir og skoða veðurspána eins og sönnum Ísfirðingum sæmir.
9:30 Heilagur tími á HVEST Ísafirði. Hér koma allir starfsmenn hússins saman og fá sér morgunkaffi. Stoppa reyndar stutt þar sem fyrsti skjólstæðingur dagsins lét að sjálfsögðu sjá sig á slaginu 9:30 eftir rólegan morgun.
9:40-11:59 Afgreiði sex erindi fram að hádegismat. Stoðkerfisverkir og flensueinkenni þemað að venju, allt frekar fljót-afgreitt. Reyni að spæna samviskusamlega í gegnum lyfjaendurnýjanirnar á milli skjólstæðinga.
12:00 Hádegismatur, besti tími vinnudagsins. Góður matur og gott fólk, getur ekki klikkað.
12:50-16:00 Önnur sex vakterindi eftir hádegi, sama þema og áður. Reyndar ein sem ég hef meiri áhyggjur af en öðrum. Er með vikusögu um hita og hósta, talsvert slöpp að sjá. Heyri ekkert óeðlilegt við hlustun en ákveð að taka CRP sem reynist verulega hækkað. Sendi hana því beint yfir ganginn í röntgenmynd af lungum sem sýnir litla íferð. Afskaplega þægilegt hvað boðleiðirnar hér eru stuttar og hlutum fljótt komið í ferli.
17:00 Við Helga keyrum saman á vaktbílnum í líkamsræktarstöðina til að taka WOD dagsins. Vaktsíminn hringir að sjálfsögðu á slaginu 17:30 þegar tíminn á að byrja, F3 útkall. Ræði stuttlega við neyðarlínuna og sjúkraflutningafólkið, ákveðum að mæla okkur mót á sjúkrahúsinu þegar þau hafa metið aðstæður betur.
18:15 Mér verður fljótt ljóst við komu skjólstæðingsins í hús að um alvarlegt mál er að ræða. Kalla út bakvaktina og fljótlega eru röntgen, rannsókn og hjúkrunarfræðingarnir á vaktinni einnig komin í hús. Viðkomandi flyst svo brátt með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
21:00 Kemst loksins heim. Glorsoltin eftir að hafa ekkert borðað frá því í hádeginu. Fer í kærkomna sturtu og hita upp lambakjöt í karrýsósu, mitt „go to“ þessa dagana af tilbúnu réttunum í Bónus. Hringi heim og við gefum stutt rapport frá deginum.
22:30 Í þann mund sem ég ætla að fara að sofa hringir vaktsíminn. Sama og áður, flensueinkenni. Skýst upp á heilsugæslu að meta viðkomandi, reyni að nota klíníska nefið títt umtalaða, er í stífri þjálfun.
23:30 Leggst á koddann, reyni að gleyma því hæfilega mikið að ég sé á vaktinni til að eiga auðveldara með svefn. Næ því sem betur fer og sef alla nóttina óáreitt.
