02. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Vísindastarfsemi á Íslandi. Yfirlit yfir doktorsritgerðir við Læknadeild HÍ 2024-5
Málþing Læknadeildar á Læknadögum 2026
Á málþingi læknadeildar Háskóla Íslands sem Sædís Sævarsdóttir forseti læknadeildar stýrði, hélt hópur lækna sem vörðu doktorsritgerðir sínar við skólann á árunum 2024-2025 erindi um rannsóknarverkefni sín. Hópurinn var fjölbreyttur með efni frá ýmsum fögum læknisfræðinnar.
Fundargestir voru áhugasamir um vísindin og vörpuðu fram góðum spurningum, sem skapaði góðar umræður. Forseti læknadeildar fékk síðan nýdoktorana til að svara spurningum um skoðanir þeirra um hvað mætti betur fara til að tryggja áframhaldandi og vaxandi vísindastarfsemi lækna. Flestir læknanna gerðu vísindarannsóknir sínar samhliða sérnámi í læknisfræði og var þeim ofarlega í huga að skapa þyrfti meiri tíma til rannsóknanna, tryggja frekara vísindafé og meta vísindanámið til sérnámsins eins og gert er víðast erlendis. Tveir nýdoktorar voru erlendis og fluttu leiðbeinendur þeirra erindi fyrir þeirra hönd.
Heiðursvísindamaður málþingsins var Vilmundur Guðnason, prófessor emeritus, forstjóri Hjartaverndar. Hann flutti skemmtilegt og áhugavert erindi um hvað varð til þess að hann gerðist vísindamaður og stiklaði síðan á stóru um rannsóknir sínar sem birtar hafa verið í þýðingarmiklum, ritrýndum erlendum tímaritum, sem og Læknablaðinu.
Niðurstöður eftirfarandi doktorsritgerða voru flutt:
• Heilsuefling fyrir liðskiptaaðgerð: Áhrif á skurðsýkingar og heilsufar. Samvinna sjúkrahúss og heilsugæslu: Martin Ingi Sigurðsson fyrir hönd Maríu Sigurðardóttur nýdoktors
• Áhrif blóðþynningar- og bólgueyðandi lyfja á horfur einstaklinga með ristil- og endaþarmskrabbamein: lýðgrunduð rannsókn: Arnar Snær Ágústsson
• Þáttur streituviðbragða við greiningu lungnakrabbameins í þróun sjúkdómsins: Hrönn Harðardóttir
• Hjarta- og lungnadælur: Ábendingar og snemm- og síðbúinn árangur: Inga Lára Ingvarsdóttir
• Lýðgrunduð rannsókn á frumkomnu aldósterónheilkenni á Íslandi: Frá greiningu til mótefnalitunar og erfða-rannsókna: Hrafnhildur Gunnarsdóttir
• Áhrif utangenaerfða á kælisvar spendýrafrumna: Hans Tómas Björnsson fyrir hönd Salvarar Rafnsdóttur
• Afleiðing heilahristings hjá íþróttakonum – möguleg vanstarfsemi í heiladingli og áhrif á andlega líðan og taugasálfræðilega virkni: Lára Ósk Eggertsdóttir Claessen
• Notkun gervigreindar til greiningar og forspár fyrir horfur sjúklinga í heilsugæslu: Steindór Oddur Ellertsson.
