02. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Heimilislæknar vöktu athygli á vottorðafargani lækna

Heimilislæknar hafa til lengri tíma vakið athygli á þeirri ótrúlegu vinnu sem læknar eyða í gerð ýmissa vottorða. Tími sem oft væri betur nýttur í að sinna skjólstæðingum heilbrigðisþjónustunnar á annan hátt. Vel er þekkt að löng bið er eftir tíma hjá heimilislæknum á flestum heilsugæslustöðvum og mikilvægt að finna lausnir til að minnka vinnu lækna við annað en að sinna sínum skjóstæðingum á sem bestan og faglegastan hátt. Á Læknadögum stóðu heimilislæknar fyrir skemmtilegri uppákomu til að vekja athygli á málefninu. Á bás þeirra í Hörpu mátti nálgast hin ýmsu vottorð. Hér má sjá tvö vottorð undirrituð af formanni Félags íslenskra heimilislækna, sem eyddi dýrmætum tíma sínum í að votta málefni sem undirstrikuðu vottorðafárið í vinnu hans sem og allra lækna og já, það má í alvöru finna titilinn: Vottorðavottorð, í sjúkrarskrárkerfinu Sögu sem víðast er notað í heilbrigðisþjónustunni. 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica