02. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Doktorsvörn við Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Dagur Ingi Jónsson

Föstudaginn 12. desember 2025 varði Dagur Ingi Jónsson doktorsritgerð sína við Karolinska Institutet. Ritgerðin bar nafnið: Sjóntauga- og mænubólgu heilkenni og tengd heilkenni: faraldsfræði, myndgreiningar lífkenni og raflífeðlisfræði (Neuromyelitis Optica Spectrum Disorder, and Related Disorders: Epidemiology, Imaging Biomarkers, and Electrophysiology).

Andmælandi var Markus Axelsson, taugalæknir og dósent við Háskólann í Gautaborg. Í doktorsnefnd sátu -Thomas Frisell, Susanna Brauner og -Magnus -Vrethem. Handleiðarar voru Ellen -Iacobaeus, Lou Brundin, Tobias Granberg og Ólafur Árni Sveinsson.

Dagur Ingi lauk kandidatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 2011. Hann lauk sérnámi í taugalækningum 2019 og í klínískri taugalífeðlisfræði 2023, hvoru tveggja frá Karolinska Háskólasjúkrahúsinu, þar sem hann starfar nú sem sérfræðilæknir í klínískri taugalífeðlisfræði.

Um verkefnið

Bólga í mænu getur orsakað varanlega fötlun en einnig verið fyrstu teiknin um alvarlegan bólgusjúkdóm í miðtaugakerfinu. MS er þeirra algengastur en framþróun í mælingu mótefna hefur afhjúpað nýja og óvanalegri sjúkdóma þar sem helst er að nefna sjóntauga- og mænubólgu heilkenni (NMOSD) og sjúkdóm tengdan mótefnum gegn sykurhvítum í mýelini fágriplufrumna (MOGAD). Í fimm verkefnum var mænubólga og ofannefndir sjúkdómar skoðaðir frá ólíkum sjónarhornum.

Tvö stærstu verkefnin voru að kortleggja algengi, orsakir og horfur mænubólgu í Stokkhólmi og algengi NMOSD í Svíþjóð. Rannsóknarhópurinn fann um það bil 25 tilfelli af mænubólgum á hver milljón lífsár og sáum að helmingur tilfellanna leiddi til MS-greiningar. NMOSD reyndist vera mjög sjaldgæfur sjúkdómur með tíðni undir einu tilfelli á hver milljón lífsár.

Margir NMOSD- og MOGAD-sjúklingar geta fengið ónæmisbælingu með rituximab sem fyrirbyggjandi meðferð. Þriðja verkefnið var að skoða árangur meðferðarinnar og voru niðurstöðurnar tvíþættar. Annars vegar svara margir sjúklingar með MOGAD-meðferðinni illa og halda áfram að fá bólguköst. Hins vegar eru alvarlegar sýkingar algengar í sjúklingahópunum.

Í fjórða verkefninu voru Virchow-Robin rými á MR myndum af heila sjúklinga með MS, NMOSD og MOGAD borin saman við fríska einstaklinga. Rýmin taka þátt í hreinsun restafurða frá heilanum og eru talin mikilvæg í meingerð bólgusjúkdóma í miðtaugakerfi. MOGAD-sjúklingar reyndust hafa mestan fjölda sýnilegra rýma, sem vekur ástæðu til frekari skoðunar í þeim sjúklingahópi.

Síðasta verkefnið var framskyggn tilraun til að nota taugalífeðlisfræðilegar mælingar við að greina á milli mænubólgu og blóðþurrðar í mænu, greininga sem getur verið erfitt að aðskilja í klínísku starfi. Í rannsóknarhópunum sást brottfall svars á hreyfihrifriti (MEP) í að minnsta kosti einum vöðva í ganglimum hjá flestum þeirra með blóðþurrð en engum með mænubólgu. Vegna óalgengis sjúkdómanna (sérstaklega blóðþurrðar í mænu) er rannsóknin of lítil til að staðhæfa um nothæfi aðferðarinnar en gefur von um að gagn sé að hafa.

Hvað segir nýdoktorinn?

Af hverju vildir þú verða læknir?

Þetta var allt frekar praktísk hugmynd sem stafaði af áhuga á mjúkum raunvísindum og að leysa vandamál.

Hversu erfitt er að verða doktor á skalanum 1-10?

Svona 7,5. Erfiðast var að halda áfram þegar markið virðist svo langt í burtu.

Hvað yrði þitt fyrsta verk sem heilbrigðisráðherra?

Setja fimmtu regluna úr House of God í forgrunn: „placement comes first“.

Hvað er skemmtilegast að gera þegar þú ert ekki í vinnunni?

Með þrjá krakka í þúsund tómstundum bjargar það alveg tilverunni að þykja einmitt skemmtilegast að fá að taka þátt í lífi þeirra.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica