02. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Besta vísindagreinin og besta sjúkratilfellið 2025
Við hátíðlega lokaathöfn á lokadegi Læknadaga 23. janúar 2026 voru veittar viðurkenningar fyrir bestu vísindagreinina og besta sjúkratilfellið birt í Læknablaðinu árið 2025, 111. árgangi blaðsins. Þetta var gert fyrst á 110 ára afmælismálþingi blaðsins sem haldið var á Læknadögum 2025, svo þetta var í annað sinn sem það er gert og verður haldið áfram.
Ritstjórn fékk til liðs við sig Karl Andersen prófessor, formann Vísindaráðs Landspítala til að velja bestu vísindagreinina. Margar greinar komu til greina en val á bestu vísindagreininni var samhljóða. Greinin uppfyllir öll skilyrði góðrar vísindagreinar. Rannsóknarspurningin er skýr og rannsóknin, sem var yfirgripsmikil, bætir mikilvægri þekkingu við það fræðiefni sem fjallað var um og fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi. Rannsóknin var unnin af þverfaglegum hópi úr efni frá Minnismóttöku Landspítala.

Markmið rannsóknarinnar var að skoða áhættu einstaklinga með væga vitræna skerðingu á að vera með sjúkdóm sem leiðir til heilabilunar.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að tæpur helmingur einstaklinga með væga vitræna skerðingu greinist með heilabilun innan tveggja ára og því þurfi að taka umkvörtun um breytingar á minni eða annarri færni mjög alvarlega, jafnvel þótt einfalt skimunarpróf gefi eðlilega niðurstöðu.
Vísindagreinin ber titilinn: „Væg vitræn skerðing – forstig heilabilunar eða eðlileg öldrun?“
Helga Eyjólfsdóttir öldrunarlæknir tók við viðurkenningunni fyrir hönd rannsóknarhópsins sem var:
Helga Eyjólfsdóttir læknir, Þorkell Elí Guðmundsson læknir, Unnur Diljá Teitsdóttir doktorsnemi, Pétur Henry Petersen prófessor, Kristinn Johnsen eðlisfræðingur, Magnús Jóhannsson, sálfræðingur, Ólöf Birna Ólafsdóttir, dósent, Sveinn Hákon Harðarson, dósent, Einar Stefánsson læknir, Margrét Sturludóttir læknir, Ísak Örn Ívarsson klínískur rannsakandi, María K. Jónsdóttir sálfræðingur og Jón Snædal, læknir.
Fyrir val á besta sjúkratilfellinu fékk ritstjórn til liðs við sig Sigurð Guðmundsson prófessor emeritus. Mörg sjúkratilfelli bárust blaðinu árið 2025 og komu mörg þeirra til greina. Sjúkratilfellið sem fékk viðurkenninguna er áhugavert og lýsir bráðri atburðarrás sem brugðist var fagmannlega við. Einstakt við sjúkratilfellið er einnig hvernig meðferðin, sem átti sér stað eftir greiningu á sjúkrahúsi utan höfuðborgarsvæðisins, í sjúkrabíl á leið á Landspítala, var vel undirbúin og faglega leyst til bjargar lífi sjúklingsins. Viðbrögð hlutaðeigandi í þessu bráða tilfelli voru án efa lífsbjargandi. Sjúkratilfellið er vel skrifað og lærdómsríkt.

Sjúkratilfellið ber titilinn: „Bráð lokun öndunarvegar utan sjúkrahúss vegna blæðingar í aftankoksbil“.
Aaron Palomares sérnámslæknir í bráðalækningum og Hjalti Már Björnsson yfirlæknir á Bráðamóttöku Landspítala rituðu sjúkratilfellið og tóku við viðurkenningu Læknablaðsins.
Læknablaðið óskar öllum höfundum til hamingju með viðurkenninguna.
