Valmynd
Sjá allar
Persónuvernd telur Landspítala ábyrgðaraðila uppflettinga starfsmanna sinna í sjúkraskrám þegar þær eru framkvæmdar af þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem koma að meðferð sjúklings og þurfa á sjúkraskrárupplýsingum hans að halda vegna meðferðarinnar, sbr. 13. gr. laga nr. 55/2009. Fari starfsmaður út fyrir aðgangsheimildir sínar beri hann sjálfur ábyrgð á því.
Allt frá því að fyrst voru sett lög um lækna árið 1932 hafa í slíkum lögum verið ákvæði um það að læknum beri að viðhalda sem best þekkingu sinni. Í lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 sem eru rammalög um lækna og aðrar löggiltar heilbrigðisstéttir er enn slíkt ákvæði. Í 3. málsgr. 13. gr. laganna segir að heilbrigðisstarfsmanni beri að þekkja skyldur sínar og siðareglur, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni, tileinka sér nýjungar er varða starfið og kynna sér lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu á hverjum tíma.
Sjá fleiri stöður