06. tbl. 111. árg. 2025

Umræða og fréttir

Staðráðin í að hafa styðjandi og gott vinnuumhverfi sem stuðli að samvinnu og umbótum

Margrét Jóna Einarsdóttir er nýr yfirlæknir í innkirtlalækningum. Læknablaðið hitti hana og ræddi starfsemi deildarinnar og hvort hún muni koma þar með einhverjar nýjar áherslur

Margrét hóf sinn vísindaferil samhliða upphafi á sérnámi í lyflækningum á Landspítala og varði meistararitgerð frá Háskóla Íslands áður en hún fór út í sérnámið. Ritgerðin ber heitið Flogalyf og miðlægur skjaldvakabrestur. Margrét lauk síðan sérnámi í lyflækningum og sérnámi í innkirtla- og efnaskiptalækningum frá Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg, Svíþjóð, samhliða því að vera í doktorsnámi við Gautaborgarháskóla. Hún varði síðan doktorsritgerð sína sem ber heitið Nýrnahettubilun af völdum sykursteranotkunar frá Gautaborgarháskóla í nóvember 2023. Margrét er gift Baldri Þórólfssyni, bæklunarskurðlækni í Orkuhúsinu. Hans sérsvið eru liðspeglunaraðgerðir á hnjám og öxlum.

Fótameinagöngudeildin í miklum vexti

Við spurðum Margréti í hverju starfsemin á Göngudeild innkirtla- og efnaskiptasjúkdóma felst og segir hún deildina sinna fjölbreytilegri og sérhæfðri þjónustu. „Starfsemin felur í sér greiningu, meðferð og eftirlit innkirtlasjúkdóma. Meirihluti skjólstæðinga deildarinnar eru með sykursýki, en aðrir stórir hópar eru einstaklingar með sjúkdóma í skjaldkirtli, nýrnahettum eða heiladingli. Einnig sinnum við einstaklingum með alvarlega beinþynningu og á göngudeildinni fara fram beinþéttnimælingar.“

Margrét tekur svo fram að fótameinagöngudeildin sé í mikum vexti og það sé mjög jákvæð þróun því skimun og eftirlit fótameina geti haft afgerandi áhrif hjá einstaklingum með sykursýki.

Hlúð verði að öflugu og færu starfsfólki deildarinnar

Með nýjum yfirlækni koma alltaf nýjar áherslur og því vildum við vita hverjar áherslur Margrétar verða. „Ég tek við góðu búi og því mikilvægt að viðhalda því góða starfi og þeirri þekkingu sem er til staðar á göngudeildinni. Ég er staðráðin í að hafa styðjandi og gott vinnuumhverfi sem stuðlar að samvinnu og umbótum. Það þarf að hlúa að því öfluga og færa starfsfólki sem vinnur á göngudeildinni.“

En mun Margrét áfram stunda vísindastarf? Hvernig sér hún það fyrir sér?

„Mig langar að efla vísindastarf og það er mikið af tækifærum til rannsókna á göngudeildinni. Vísindastarf er mikilvægt til að meta og sýna þann árangur sem hefur náðst á síðustu árum á göngudeildinni. Rannsóknir geta leitt í ljós hvar styrkleikar okkar liggja og hvar má bæta þjónustuna.“

Nýjar lausnir til að tryggja áfram góða kennslu

Nú er verið að fjölga læknanemum sem teknir eru inn ár hvert hjá Háskóla Íslands og því lá beinast við að spyrja Margréti hvort hún sjái fyrir sér að geta haldið utan um aukna þörf á klínískri kennslu í innkirtlasjúkdómum og ekki síst sykursýki sem er afar vaxandi greining alls staðar á Vesturlöndum.

Margrét svarar því til að eitt af hlutverkum háskólasjúkrahúss sé kennsla og að þjálfa læknanema. Þegar læknanemum fjölgi, þurfi eðli málsins samkvæmt að finna nýjar lausnir til þess að tryggja að læknanemar fái góða kennslu og áhersla verði lögð á það á göngudeildinni.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica