06. tbl. 111. árg. 2025

Umræða og fréttir

Kortisólskortur við langvarandi sykursterameðferð – Bláa kortið

Sykursterar eru mikilvægir í meðferð margra sjúkdóma og eru um 0,5% Íslendinga á langvinnri meðferð.1 Sykursterameðferð getur bælt framleiðslu kortisóls í nýrnahettunum og leitt til nýrnahettubilunar, sem kallast þá nýrnahettubilun vegna sykursteranotkunar (glucocorticoid-induced adrenal insufficiency). Þetta er vangreint ástand sem getur verið lífshættulegt, sérstaklega í tengslum við bráð veikindi.2 Mikilvægt er að auka fræðslu því einkenni nýrnahettubilunar (þreyta, lágur blóðþrýstingur, ógleði, megrun, orkuleysi) eru ósértæk og auðvelt að misgreina þau sem versnun á undirliggjandi sjúkdómi eða sem sýkingu.2

Fyrir ári síðan voru gefnar út alþjóðlegar leiðbeiningar um greiningu og meðferð nýrnahettubilunar vegna sykursteranotkunar. Þessar leiðbeiningar eru samvinna Evrópsku innkirtlasamtakanna (European Society of Endocrinology) og Bandarísku innkirtlasamtakanna (Endocrine Society) og hinar fyrstu sem birtar eru um þetta efni.3,4 Í leiðbeiningunum er lögð áhersla á að hækka sykursteraskammta í bráðum veikindum og við inngrip til að koma í veg fyrir bráða nýrnahettubilun hjá einstaklingum sem hafa verið á sykursterum í meira en þrjár til fjórar vikur. Íslensk þýðing á þessum leiðbeiningum um skammtahækkanir hafa verið útbúnar og eru nú aðgengilegar á heimasíðu Félags um innkirtlafræði (FUI), sem finna má á heimasíðu Læknafélags Íslands undir sérgreinafélög. Til að auka fræðslu og vitund um hættuna hefur einnig verið hannað sérstakt blátt kort sem einstaklingar á langvinnri sykursterameðferð geta borið á sér.

Á kortinu er QR-kóði sem vísar beint í íslensku leiðbeiningarnar um skammtahækkanir við bráð veikindi. Nýlega var kortið tekið í notkun í Svíþjóð.5 Nú hefur FUI í samvinnu við sænska innkirtlafélagið (Svenska Endokrinolog föreningen) sett fram kortið á íslensku. Kortið er ætlað einstaklingum sem eru á meðferð með prednisóloni ≥5 mg á dag (eða samsvarandi skammti af öðrum sykursterum) lengur en þrjár til fjórar vikur. Kortið er bæði áminning til einstaklingsins um að auka þurfi skammta við bráð veikindi og til upplýsingar fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Einstaklingur heldur kortinu í 6 mánuði eftir að sykursterameðferð lýkur, nema nýrnahettubilun hafi verið útilokuð með blóðrannsókn. Þetta er gert vegna þess að á fyrstu mánuðum eftir að sykursterameðferð lýkur er hættan á bráðri nýrnahettubilun enn til staðar. Kortið er nú aðgengilegt á heimasíðu FUI. Læknir sem ávísar 

langri sykursterameðferð bendir þá skjólstæðingi sínum á að sækja kortið á heimasíðu Félags um innkirtlafræði eða prentar það út fyrir viðkomandi.

 

 

 

 

 

Blátt kort sem ætlað er einstaklingum sem eru á sykursterum í meira en 3-4 vikur og taka skammt sem jafngildir > 5 mg prednisólons á dag.

 

 

Heimildir

1. Bjornsdottir HH, Einarsson OB, Grondal G, Gudbjornsson B. Nationwide prevalence of glucocorticoid prescriptions over 17 years and osteoporosis prevention among long-term users. SAGE Open Med. 2024;12:20503121241235056.

2. Einarsdottir MJ, Trimpou P, Johannsson G, et al. Undiagnosed adrenal insufficiency as a cause of premature death in glucocorticoid users. Endocr Connect. 2024;13(4):e230535.

3. Beuschlein F, Else T, Bancos I, et al. European Society of Endocrinology and Endocrine Society Joint Clinical Guideline: Diagnosis and therapy of glucocorticoid-induced adrenal insufficiency. Eur J Endocrinol. 2024;190(5):G25-g51.

4. Beuschlein F, Else T, Hahner S, et al. European Society of Endocrinology and Endocrine Society Joint Clinical Guideline: Diagnosis and Therapy of Glucocorticoid-induced Adrenal Insufficiency. J Clin Endocrinol Metab. 2024 Jun 17;109(7):1657-1683

 

5. Imamovic M, Dahlqvist P, Ragnarsson O, et al. Glucocorticoid-induced adrenal insufficiency. Lakartidningen. 2025;122.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica