06. tbl. 111. árg. 2025

Umræða og fréttir

Bréf til blaðsins. Gamlar myndir loksins fundnar – fjörutíu og fimm ára afmæli útskriftarárgangs 1980

Vorið 1980 voru teknar myndir af útskriftarárgangi 1980 strax að afloknu síðasta vorprófinu. Hópurinn, alls 36 manns, glaður og þreyttur, en ekki beinlínis í hátíðaklæðnaði enda ekki um útskriftarmynd að ræða. Hópurinn tvístraðist fljótlega eftir útskrift og enginn mundi hver tók myndirnar, en margir mundu myndatökuna. Gegnum árin hafa menn velt fyrir sér hvar þessar myndir gætu verið niðurkomnar og ég var einn af þeim sem var að grennslast fyrir um þær. Síðastliðið haust fann ég svo upplitaðar litmyndir í gömlum kössum heima við og varð talsvert hissa og skömmustulegur. Ég mundi að ég tók þær ekki, en þær höfðu greinilega verið teknar á mína myndavél. Ég verð að biðja útskriftarárganginn afsökunar á þessu klúðri af minn hálfu og bið Læknablaðið að hjálpa mér að koma einni af þeim á framfæri. Myndin er af ungum tilvonandi læknum með bjarta framtíð fyrir sér, en birtist nú 45 árum síðar er flestir eru að huga að starfslokum, eða eru þegar hættir störfum. Það er því, ólíkt öðrum útskriftarárgöngum sem Læknablaðið hefur birt myndir af, hægt að birta nöfn og sérgreinaval árgangsins.

 

Í fremstu röð frá vinstri

Arnór Egilsson heilsugæslulæknir, Svíþjóð

Haraldur Sigurðsson augnlæknir

Már H. Tulinius barnalæknir, Svíþjóð

Sigurður Örn Hektorsson geðlæknir

Finnur Snorrason bæklunarlæknir, Noregi

Steingrímur Björnsson kvensjúkdómalæknir, Skotlandi

 

Í annari röð frá vinstri

Robert John Doell svæfingalæknir, BNA

Eiríkur Þorgeirsson augnlæknir

Tryggvi B. Stefánsson skurðlæknir

Sigurbjörn Björnsson öldrunarlæknir

Páll Tryggvason barna- og unglingageðlæknir

Brynjólfur Jónsson bæklunarlæknir

Þórður Sverrison augnlæknir

 

Í þriðju röð frá vinstri

Ólafur M. Håkansson kvensjúkdómalæknir

Halldór Jónsson bæklunarlæknir

Sólveig Benjamínsdóttir heilsugæslulæknir

Bogi Ásgeirsson svæfingalæknir

Jón Ingvar Ragnarsson bæklunarlæknir

Hannes Þ. Hjartarson háls-, nef- og eyrnalæknir

Böðvar Örn Sigurjónsson heilsugæslulæknir

Baldvin Jónsson barnalæknir

 

Í fjórðu röð frá vinstri

Einar Guðmundsson geðlæknir

Guðmundur Einarsson geislagreining

Kolbrún S. Benediktsdóttir myndgreining

Pétur Heimisson heilsugæslulæknir

Sólveig Óskarsdóttir barnalæknir

Ólafur Gísli Jónsson barnalæknir

 

Aftasta röð frá vinstri

Einar E. Jónsson heilsugæslulæknir

Þórarinn Baldursson heilsugæslulæknir

Stefán Gylfi Gunnarsson heilsugæslulæknir, Noregi

Guðný Bjarnadóttir öldrunarlæknir

Kristján Guðmundsson háls-, nef- og eyrnalæknir

Brynhildur Ingvarsdóttir augnlæknir

Sigurlaug Karlsdóttir geðlæknir

Helga Hrönn Þórhallsdóttir húð- og kynsjúkdómalæknir

Ragnhildur G. Steinbach skurðlæknir

 

 

 

 

Eins og sjá má af sérgreinavalinu dreifist hópurinn nokkuð jafnt á algengustu sérgreinarnar, en heilsugæslan trónir þó efst með 7 heilsugæslulækna. Upplýsingar sem hér birtast eru eftir minni og úr hinu frábæra læknatali frá árinu 2000.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica