05. tbl. 111. árg. 2025

Umræða og fréttir

Bréf til blaðsins. Vanhelgun ævikvöldsins

Byggingarframkvæmdir eru fyrirhugaðar á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík og munu standa í rúmlega tvö ár. Byggð verður heil hæð ofan á húsið og tvær álmur lengdar. Íbúðum fjölgar úr 92 í 150-160. Til stendur að íbúar hjúkrunarheimilisins búi í húsinu allan tímann og hjúkrunarheimilið starfi óbreytt, þrátt fyrir byggingarframkvæmdirnar.

Gæðastaðall og eftirlit

Sjúkratryggingar gera samning við hjúkrunarheimili um þjónustu og gæði. Landlæknisembættið og heilbrigðisráðuneyti hafa eftirlitsskyldu með heilbrigðisþjónustu, þar á meðal hjúkrunarheimilum. Er hávaði og rask af umfangs-miklum byggingarframkvæmdum skerðing á gæðum þjónustunnar og lífsgæðum vistmanna? Er ásættanlegt að starfrækja hjúkrunarheimili í húsi sem er í byggingu?

Réttindi vistmanna

Skúli Magnússon, þáverandi umboðsmaður Alþingis, ræddi stöðu vistmanna á hjúkrunarheimilum í viðtali við Morgunblaðið 1. september 2024. Hann benti á að lagaleg staða og réttindi þessa hóps væru óskýr og illa skilgreind í lögum og reglum. Það væri eins og þessi hópur hefði gleymst. Fyrirsögn viðtalsins á Mbl.is var: „Telur heilabilað fólk á lokuðum deildum frelsissvipt án laga“. Skúli segir meðal annars: „Það má segja að sumt af þessu fari fram í hálfgerðu lagalegu tómarúmi. Ég nefni sem dæmi stöðu fólks með heilabilun á lokuðum deildum hjúkrunarheimila. Um þetta er í raun og veru engin lagaumgjörð.“

Ákvörðun um byggingarframkvæmdir í Sóltúnshúsinu er tekin að íbúunum forspurðum. Íbúar hússins fá hvorki grenndarkynningu né andmælarétt. Ljóst má vera að eigendur venjulegs fjölbýlishúss í Reykjavík myndu ekki byggja heila hæð ofan á húsið án þess að kynna það íbúum, varla gera það án þeirra samþykkis og ekki detta í hug að íbúarnir búi í húsinu meðan byggingarframkvæmdir standa. Þetta á við um venjulega heilbrigða borgara. Hafa heilabilaðir og fatlaðir íbúar hjúkrunarheimila engan rétt?

Heimilismenn hjúkrunarheimila eiga þar sitt heimili og lögheimili. Þeir borga tekjutengda „húsaleigu“, sem fer hjá sumum yfir 500.000 krónur á mánuði. Allir búa þarna til dauðadags og eiga flestir sínar síðustu stundir á hjúkrunarheimilinu. Dvalartími fólks á hjúkrunarheimilum er að jafnaði styttri en áætlaður framkvæmdatími í Sóltúni og flestir núverandi íbúar munu eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum.

Okkar smæstu bræður og systur

„Tvisvar verður hver maður barn“ segir málshátturinn og sú gamla lýsing á heilabilun „að ganga í barndóm“ á vel við. Fólk með langt gengna heilabilun er sumt hvert á svipuðu stigi og eins til tveggja ára barn – getur ekki talað, gengið eða verið sjálfbjarga. En rétt eins hjá ómálga smábörnum, eru tilfinningar til staðar, kvíði, hræðsla eða ró, gleði eða sorg, enda þótt hæfnin til að tjá tilfinningarnar sé takmörkuð. Sjúklingar með heilabilun eru enn verr settir en heilbrigðir sem verða fyrir hávaða og raski. Þeir gera sér síður grein fyrir ástæðum rasksins og skilja ekki skýringar starfsfólks og aðstandenda. Því eru auknar líkur á hræðslu og kvíða hjá sjúklingum með heilabilun. Getur þó hver og einn ímyndað sér hvernig er að búa í húsi sem er í byggingu.

Helgi dauðastundarinnar

Allir sem nokkuð eru við aldur hafa upplifað andlát náinna ættmenna og vina. Andlát eru oft fyrirsjáanleg og síðustu dagana koma nánustu ættingjar og vinir til að sitja með sjúklingnum og kveðja. Flestum er þetta heilög stund. Á sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum er leitast við að gera þessar stundir sjúklingsins og aðstandenda sem bestar, heilagar og virðulegar. Múrborar og hamarshögg, sem berast um alla veggi og loft, munu vanhelga þessa heilögu stund.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica