Vísindaráð Landspítala
Vísindaráð er framkvæmdastjórn til ráðgjafar um vísindastefnu og vísindastarf á sjúkrahúsinu gagnvart háskólastofnunum og öðrum. Vísindaráð er vísinda-, mennta- og gæðasviði til ráðgjafar um þau verkefni sem snúa að háskóla- og vísindastarfi og þróun heilbrigðisvísinda.
Vísindaráð á aðild að úthlutun styrkja úr Vísindasjóði LSH samkvæmt reglum sjóðsins, og semur matsreglur í samræmi við alþjóðlegar viðmiðanir og með hliðsjón af matsreglum íslenskra háskóla.
Vísindaráð hefur það hlutverk að sjá um kynningu á vísindastarfi sem fram fer á spítalanum og er til ráðgjafar við veitingu viðurkenninga fyrir vísindastörf á spítalanum. Árlega eru haldnir vísindadagar, Vísindi á vordögum, þar sem markverðar vísindaniðurstöður eru kynntar í fyrirlestrum og á veggspjöldum. Þá eru einnig veitt verðlaun til vísindamanna og styrkir veittir úr Vísindasjóði Landspítalans. Vísindaráð er skipað sjö mönnum til fjögurra ára.
Vísindaráð Landspítala
Gísli H. Sigurðsson læknir (formaður), skipaður af læknaráði
Rósa Björk Barkardóttir yfirnáttúrufræðingur (varaformaður), skipuð af forstjóra LSH
Sigríður Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, skipuð af hjúkrunarráði
Herdís Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur, skipuð af hjúkrunarfræðideild HÍ
Gunnar Guðmundsson læknir, skipaður af læknadeild HÍ
Halldór Jónsson jr. læknir, skipaður af læknadeild HÍ
Jón Friðrik Sigurðsson sálfræðingur, skipaður af forstjóra LSH
Varamenn
Magnús Gottfreðsson læknir, skipaður af læknaráði
Þórður Helgason heilbrigðisverkfræðingur, skipaður af forstjóra LSH
Páll Biering hjúkrunarfræðingur, skipaður af hjúkrunarráði
Guðrún Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur, skipuð af hjúkrunarfræðideild HÍ
Hannes Petersen læknir, skipaður af læknadeild HÍ
Einar Stefán Björnsson læknir, skipaður af læknadeild HÍ
Inga Þórsdóttir náttúrufræðingur, skipuð af forstjóra LSH
Verkefnastjóri Vísindaráðs: Sigríður Sigurðardóttir, vísinda-, mennta- og gæðasviði