07/08. tbl. 95.árg. 2009

Umræða og fréttir

Þing lækna

Vorin eru æ vinsælli tími fyrir alls kyns þing. Haldnar voru í það minnsta tvær stórar ráðstefnur í Reykjavík í vor. Sú fyrri var dagana 3.-5. júní og þar söfnuðust saman hjartalæknar úr öllum heimshornum. Seinni stefnan var 10.-13. júní og þar hittust norrænir þvagfæraskurðlæknar sem lengi hafa haft með sér bandalag og útgáfu. Læknablaðið gaf út fylgirit með síðarnefnda þinginu og var því dreift til ráðstefnugesta. Fylgiritið er jafnframt varðveitt á heimasíðu blaðsins: www.laeknabladid.is/fylgirit/61/dagskra/

 

Þessir tveir voru í framvarðasveit stórs þings. Guðmundur Geirsson formaður íslenskra þvagfæraskurðlækna og Guðjón Haraldsson forseti þingsins NUF2009, sem var 27. þing samtaka norrænna þvagfæraskurðlækna: nordisk urologisk förening.

 

Í fundarhléi á hjartalæknaþinginu skemmti Þórarinn Guðnason hjartalæknir þeim Eric J. Sijbrands frá Hollandi sem er vinstra megin á myndinni og Elmir Omerovic frá Svíþjóð.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica