06. tbl. 95. árg. 2009

Umræða og fréttir

ALSO-námskeið í fæðingarhjálp

Læknar og ljósmæður á kvennadeild Landspítala stóðu á dögunum fyrir svokölluðu ALSO-námskeiði sem 22 læknar og ljósmæður sóttu. „ALSO stendur fyrir Advanced Life Support in Obstetrics og er upprunnið í Bandaríkjunum þar sem heimilislæknar þróuðu námskeið til þjálfunar í bráðatilfellum á meðgöngu og í fæðingu,“ segir Berglind Steffensen, sérfræðingur á kvennadeild Landspítala, einn skipuleggjenda námskeiðsins. „Það hefur síðan komið í ljós að allir sem starfa að fæðingarhjálp, læknar og ljósmæður, hafa mikið gagn af námskeiðinu og það hefur tekið á sig mjög staðlaða mynd og er kennt á sama hátt alls staðar í heiminum.“

 

u07-fig1_opt

 

Á Norðurlöndunum hafa Danir tekið að sér að sjá um framkvæmd námskeiðsins. Hér á Íslandi hafa fjórir fæðingalæknar og fjórar ljósmæður hlotið réttindi sem alþjóðlegir ALSO-leiðbeinendur. Á þessu fyrsta námskeiði á Íslandi voru fæðingalæknir og ljósmóðir frá Danmörku sem gættu þess að stöðluðu fyrirkomulagi námskeiðsins væri fylgt í hvívetna.

„Markmið ALSO-námskeiðsins er að kenna rétt viðbrögð og handtök í bráðatilfellum og auka þannig færni þeirra sem að fæðingum koma ásamt því að tryggja öryggi fæðandi kvenna og barna þeirra,“ segir Berglind.

 

u07-fig2

 

„Á námskeiðinu eru fyrirlestrar, farið yfir tilfelli í litlum hópum en einnig eru notaðar brúður til að skapa sem raunverulegastar aðstæður erfiðra fæðinga. Kennd eru rétt handtök og viðbrögð á staðlaðan hátt og er stuðst við eins konar minnisþulur (mnemonics) þar sem skammstafanir standa fyrir röð viðbragða við tilteknar aðstæður. Það er farið í gegnum atriði eins og axlarklemmu, sitjandafæðingar, notkun sogklukku, viðbrögð við hættulegum blæðingum og endurlífgun þungaðra kvenna og nýbura svo eitthvað sé nefnt. Lögð er áhersla á nána samvinnu ljósmæðra og lækna. Þessi þjálfun getur komið sér sérstaklega vel fyrir þá sem starfa úti á landi þar sem óvæntar aðstæður geta orðið til þess að ljósmóðirin eða læknirinn þurfa að sinna erfiðri fæðingu án aðstoðar.“

 

u07-fig3

 

Berglind segir að fyrirhugað sé að halda fleiri ALSO-námskeið hér á landi. „Við stefnum að því að halda námskeið í byrjun næsta árs og síðan reglulega til þess að tryggja að allir sem koma að fæðingum fái þessa mikilvægu þjálfun.“

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica