05. tbl. 94. árg. 2008

Hugleiðing höfundar. Um fegurðina, máttleysi orðanna og fáláta tóna nefsins. Vigdís Grímsdóttir

Vigdís GrímsdóttirFegurðin er ólýsanleg; maður veit að hún er þarna, finnur fyrir henni, verður hennar var, þykist jafnvel sjá hana stundum, en orðin ná aldrei að lýsa henni til fulls. Þau ná ekki utan um veruleika hennar vegna þess að hún er einhvernveginn handan við hinn þrönga merkingarheim orða og tungumáls. Ég er í raun að segja að það sem mig langar til að skrifa um geti ég hvorki sagt né skrifað; en ég er iðin við kolann og ætla að reyna þótt mig gruni að það muni annaðhvort skila sér næstum því eða alls ekki. Ég er nefnilega bæði takmörkuð af tungumálinu og kerfisbundnum heimi hins heilbrigða manns sem hvorttveggja heftir mig og setur mér skorður.

Fyrir langa löngu skrifaði ég bók sem byggði á lífi geðklofa konu; sagan lýsir heimi hennar og þeim óhugnaði og þeirri fegurð sem þar ríkti og stöðugt og eilíflega börðust um í sál hennar. Ég skildi þennan heim, ég fann honum stað í hjarta mínu og í tónlistinni sem konan dáði og taldi að væri einasta aflið sem gæti bæði fangað fegurð og ljótleika. Það var því vegna algleymis tónlistarinnar andspænis máttleysi orðanna sem hún hætti endanlega að tala bæði við mig og aðra enda allt sem hún sagði dæmt til að farast. Það trúði henni aldrei nokkur maður og þess vegna var líf hennar hrynjandi borg og röddin gjallandi bjalla. Hún þagnaði sem sé gjörsamlega en lifði sem aldrei fyrr ríkulegu innra lífi með og í tónlist sem færði henni bæði takmarkaleysi og frelsi samkvæmt hennar eigin geðklofna skilningi.

Sá lærdómsríki heimur sem konan opnaði mér var bæði barnslegur og fallegur en ekki síður ljótur og illur; en orðin sem ég vel til að lýsa honum - barnslegur, fallegur, ljótur, illur - ná alls ekki að draga upp rétta mynd af dínamísku eðli hans.

Í áðurnefndri bók talar konan við barnabarn sitt um tónlistina sem hún elskar. Allt er auðvitað fært í blessaðan stílinn. Í raunveruleikanum, aftur á móti, áttum við tvær þetta samtal sem birtist hér sannleikanum samkvæmt og er á mörkum hins heilbrigða.

-Það er tónlistin sem er lífið, sagði hún.

-Það getur ekki verið, sagði ég.

-Jú, hún er það víst; hún er í litlu tánni á nýfæddu barni, í laufinu á haustin, í malbikinu á götunni, í rúsínunni í pakkanum, kartöflunum í pottinum, í slitnum streng fiðlunnar, yfirgefinni flautunni, brotnum bassanum, kulnuðum eldinum, skýjum himinsins og lágværu dilli konu sem karlmaður riðlast á; tónlistin er alls staðar og þú skalt finna hana þótt þú getir aldrei lýst henni.

-Og hvernig á ég að finna hana?

-Byrjaðu á líkamanum, hver líkamspartur hefur sitt eigið tónsvið, sagði hún.

-Og nefið líka? spurði ég.

-Það eru fálátir tónar í nefinu en þeir eru öruggir og ákveðnir.

-En hvað um hnén?

-Tónar hnjánna eru holir og tómir og sýna - annaðhvort leiða eða ljúfar kenndir.

-Hvað um rófubeinið?

-Tónar þess eru ísmeygilegir og lúmskir.

-Hvað um hökutónana?

-Þeir eru auðmjúkir og undirgefnir.

-Hvernig veistu þetta? hlaut ég að spyrja.

-Ég heyri þetta þegar ég leyfi tónlistinni að tala til mín og læt orðin ekki eyðileggja fyrir mér einsog þú ert alltaf að gera. Orðin eyðileggja fyrir öllum; þau hefta nautnina.

-Ég þarf að læra þetta, sagði ég.

-Veldu þér tóna og ég skal kenna þér að hlusta.

Það er skemmst frá því að segja að ég valdi mér neftónana; ég fór í bað, samkvæmt harðri skipun, færði mig á kaf og hreinsaði nefið því það var auðvitað nauðsynleg forsenda þess að finna hina leyndu tóna. Og þegar ég hafði gert þetta hvað eftir annað, þangað til að ég var næstum drukknuð, heyrði ég hina fálátu og öruggu tóna nefsins hljóma.

-Þetta var ansi skemmtilegt, sagði ég.

-Þetta var fegurðin sjálf, sagði hún og setti Svanavatnið á fóninn og svo sönglaði hún með þessari yndislegu tónlist sem engin orð ná að lýsa en hver og einn finnur sem gefur sig henni á vald; hann finnur heim án takmarka, heim frelsis, fegurðar, fullnægju og unaðar. Og enda þótt orðin um allt þetta nái aldrei að lýsa því þá gerir tónlistin það; þetta mikla alheimsafl sem allir menn skynja hvort sem þeir teljast klofnir eða heilir.

Fegurðin er ólýsanleg og í hvert skipti sem ég reyni að koma henni í orð opnast mér nýjar víddir og hugmyndir. En bíðum við, þessi orð - nýjar víddir og hugmyndir - lýsa alls ekki því sem ég finn, skil, skynja og langar til að segja vegna þess að ég á einfaldlega ekki til orðin yfir fegurðina frekar en annað það sem knýr áfram þetta dæmalausa líf. Samt sem áður er ég sífellt talandi og skrifandi enda telst ég heilbrigð og gjörólík konunni sem kenndi mér á fáláta tóna nefsins og valdi að þegja af því að máttlaus orðin sviptu hana frelsi og nautn.

Það er náttúrlega ekki alltaf alveg í lagi með skilgreiningarnar.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica