03. tbl. 94. árg. 2008

Íðorð 207. Súr og sýring

JohannHJ_optAcidemia

Læknisfræðilegur þýðandi sendi tölvupóst yfir úthöfin og bað um aðstoð við að aðgreina fyrirbærin acidemia og acidosis með íslenskum heitum. Í Íðorðasafni lækna er heitið acidemia er notað um tiltekna breytingu á sýrustigi (pH) í blóði, það er að segja lækkun pH niður fyrir eðlileg mörk, og hefur þar fengið íslenska heitið blóðsúr. Erlendar læknisfræðiorðabækur upplýsa að heitið sé einnig notað í samsetningum þegar um er að ræða aukna þéttni á sérstökum sýrum í blóði, svo sem aminoacidemia. Samkvæmt Íslenskri orðabók Eddu merkir nafnorðið súr: 1. ástand, það að vera súr; 2. sýra; 3. súr mysa; 4. súr drykkur; 5. súrt skyr.

Acidosis

Íðorðasafn lækna birtir eftirfarandi: acidosis ft. acidoses, no. blóðsýring. Almenn blóðsýringseitrun blóðs og vessa sem einkennist af aukningu vetnisjóna og lúttapi. Erlendar læknisfræðiorðabækur leggja áherslu á að acidosis sé ástand þar sem sýru- og basajafnvægi líkamans sé truflað, þannig að sýrujónir (H+) hafi safnast fyrir eða basískar jónir (HCO3-) tapast. Gert er ráð fyrir lækkun pH-gildis, en þó ekki endilega fyrr en mótvægisaðgerðir hafa brugðist. Af þessu má ráða að heitið acidosis sé talið lýsa ástandi sem ríkir, einhverju sem orðið er, en ekki ferli eða umbreytingu sem er að verða. Kvenkynsnafnorðið sýring finnst í Íslenskri orðabók Eddu með skýringunni: það að sýra, fækkun rafeinda í sameind. Undirritaður skilur þetta þannig að fremur sé verið að lýsa ferli sýringar en ástandinu sem er afleiðing hennar.

Súr og sýring

Þó undirritaður feginn vildi getur hann ekki fullyrt að framangreindar útskýringar kveði upp úr um rökrétta aðgreiningu á acidemia og acidosis með íslensku heitunum súr og sýring. Blóðsúr er vissulega ágætis heiti, sem getur lýst því ástandi að súr (sýra) í blóði sé aukinn og sýrustig (pH) þar með lækkað. Undirrituðum finnst það heiti þó allt eins geta átt við um acidosis. Með því væri hægt að setja saman ágætlega lipur heiti til að tákna tilteknar raskanir í sýrujafnvægi líkamans: efnaskiptasúr (metabolic acidosis) og öndunarsúr (respiratory acidosis). Hugsanlega þarf að fella niður heitið acidemia og hætta alveg notkun þess, eins og virðist hafa verið gert í Handbók í lyflæknisfræði (bls. 46-52) eftir lyflæknana Ara J. Jóhannesson og Runólf Pálsson. Áður en lengra er haldið á þessari braut væri gaman að heyra frá þeim sem skoðanir hafa á þessu viðfangsefni.

 

Líffæraflutningur

Blaðamaður einn bað um íslenskt heiti á xeno-transplantation, en slíkt er ekki að finna í Íðorðasafni lækna. Þar má þó finna að forliðurinn xen- eða xeno- merkir: a) frábrugðinn, framandi, b) utanaðkomandi, íþrengjandi, og að íslensku heitin á transplantation eru ágræðsla, ígræðsla. Gríska nafnorðið xenos er notað um þann sem ókunnur er eða útlendur, samanber xenophopbia, útlendingafælni.

Með leit á netinu mátti finna að xenotransplantation vísar í flutning líffæra, vefja eða frumna milli dýrategunda. Blaðamaðurinn fékk því sendar samsetningarnar: líffæraflutningur milli tegunda eða ígræðsla milli tegunda.

 

Auscultatory gap

Reynir Tómas Geirsson, prófessor, sendi uppástungu að íslensku heiti á auscultatory gap. Slíkt heiti er ekki að finna í Íðorðasafni lækna, aðeins spurningarmerki (?). Um er að ræða tímabil þar sem hlé verður á högghljóðunum (Korotkoff sounds) sem heyrast þegar blóðþrýstingur er mældur með hlustunaraðferð. Þetta tímabil vildi Reynir nefna hljóðmarkabil. Tillagan er allrar athygli verð og bíður athugasemda þeirra sem fást við blóðþrýstingsmælingar.

 

Meta-analysis

Reynir bað einnig um heiti á meta-analysis, kerfisbundinni, tölfræðilegri greiningu og samantekt á gögnum úr nokkrum mismunandi rannsóknum á sama fyrirbæri. Þessu var svarað með tilvísun í íðorðapistla 124 og 127 (Læknablaðið 2000; 86: 533 og 711). Þar kom fram tillaga að íslensku heiti: safngreining, sem á við um greiningu á safni margra rannsókna.

 

Skeiðarsviði

Þorkell Jóhannesson, professor emeritus, sendi tölvupóst í tilefni af 202. pistli og vildi minna á heitið skeið í stað leggöng fyrir vagina. Í pistlinum var meðal annars fjallað um vulvodynia og vaginodynia, sársaukafullt ástand sem einkennist af ertingu með sviða- eða brunatilfinningu á viðkomandi líkamssvæði. Niðurstaðan í pistlinum var sú að nota heitin skapasviði og leggangasviði.

Þorkell sagðist hafa haldið heitinu skeið til streitu í ýmsum samsetningum og benti á að heitin skeiðarbólga, skeiðarkrem og skeiðarstílar nytu fullrar viðurkenningar. Þess vegna væri eðlilegt að nota heitið skeiðarsviði um vaginodynia.

johannhj@landspitali.is



Þetta vefsvæði byggir á Eplica