01. tbl. 94. árg. 2008

Umræða og fréttir

Úr penna stjórnarmanna LÍ. Fyrsta sérverslun á Íslandi með dauðra manna bein. Elínborg Bárðardóttir

Elínborg BárðardóttirFélag íslenskra heimilislækna (FÍH) var stofnað 1978 og á því 30 ára afmæli á árinu. Í tilefni afmælisins ákvað stjórn félagsins að safna saman gögnum um sögu heimilislækninga á Íslandi til varðveislu á viðeigandi hátt. Vonumst við til að sú vinna auðveldi komandi kynslóð að skrifa sögu félagsins þegar það verður tímabært.

Í Læknablaðinu (nóvember 2007) var áhugaverður pistill Ólafs Þ. Jónssonar læknis og Braga Þ. Ólafssonar um ævisögur og endurminningar lækna. Samkvæmt samantekt þeirra á flestu sem gefið hefur verið út um það efni sýnist mér að það séu mestar líkur á að skrifa endurminningar sínar ef maður er læknir og heitir Bjarni, Jón, Björn, Ólafur eða Guðmundur. Aðeins ein kona komst á listann en þess ber þó að geta að afar fáar konur voru í læknastétt fyrir 1950 eins og réttilega er bent á í greininni. Mér fannst það einnig broslegt að sagnfræðingar hafa skipt sjálfsævisögum niður í hina ýmsu flokka, þ.á.m. sjálfsdýrkunarrit, réttlætingarrit, fortíðarglýjurit, játningarit, pólitísk sjálfssögurit, uppgjörsrit, áróðursrit, lífsferilsrit, lífsreynslusögur og verðmætavörslurit auk fleiri tegunda. Verðmætavörslurit finnst mér hljóma best hvað svo sem það nú þýðir nákvæmlega. Ég hef sjálf sótt í að lesa ævisögur lækna og pistla eftir löngu liðna lækna og fundist það fróðleg og skemmtileg lesning. Að lesa sér til um fortíðina er hollt að mínu mati, það vekur með manni hógværð í nútíðinni sem er nauðsynleg framtíðinni. Mjög líklega munu læknar framtíðarinnar undrast hvernig við notum geðlyf í dag á sama hátt og við í dag hleypum brúnum yfir vatnskúrum og föstum sem margir geðlæknar höfðu óbilandi trú á í byrjun síðustu aldar. Safn ritsmíða Vilmundar Jónssonar landlæknis get ég t.d. nefnt sem skemmtilega lesningu. Vilmundur skrifaði m.a.: ?að gagnvart flestum sjúkdómum standi læknar eins og veðurfræðingar gagnvart veðrinu og flestir sjúkdómar sem á annað borð batna, batna án kraftaverka á svipaðan hátt og vont veður snýst í gott?. Þessi orð voru skrifuð 1933 og ollu töluverðri úlfúð meðal lækna en það var í þeim sannleikur þá og 75 árum síðar er ennþá í þeim sannleikskorn. Ég mæli einnig með lestri um fyrirtækið Mannabein SF í bók Páls Kolka "Úr myndabók læknis", þar sem segir frá fyrstu sérverslun á Íslandi með dauðra manna bein, frekar sérstök frásögn og stórskemmtileg.

Saga heimilislækninga er nátengd sögu samfélagslegrar hugsjónar og hugmynda um velferðarkerfið og þróaðist samkvæmt norrænni fyrirmynd að mestu, þó að Bretar hafi einnig haft svipaðar hugmyndir. Með tilkomu sjúkrasamlaga og stofnunar Tryggingarstofnunar ríkisins (1936) var í raun lagður grunnur að því að sjúklingar hefðu sinn eigin heimilislækni og fengju þannig samfellda persónulega læknisþjónustu. Heilsuverndarstöðin var stofnuð 1953 og síðan fylgdu Íslendingar öðrum þjóðum í umræðu um almennar lækningar og skort á almennum læknum. Boðskapur og áhrif 68-kynslóðarinnar hafa líklega líka ýtt undir hugmyndir um samhyggju og það að bjóða hefðbundnu stjórnkerfi og hugsunarhætti byrginn og úr þeim jarðvegi spruttu menn eins og Ólafur Mixa sem varð síðan fyrstur íslenskra lækna til að fá sérfræðiviðurkenningu í heimilislækningum 1971. Á áttunda áratugnum þróaðist síðan hugmyndafræði heimilislækninga á Íslandi. Megininntak hennar var að frumheilsugæsla væri grunnur góðrar heilbrigðisþjónustu og samfella væri mikilvægasta forsenda vandaðra heimilislækninga. Heimilislæknir hefði samfélagslega ábyrgð ekki síður en ábyrgð gagnvart skjólstæðingi sínum. Góð heilsugæsla var einnig talin þarfnast menntaðra heimilislækna sem byggðu grunn sinn á fræðilegri nálgun sem styddist við vísindavinnu og þróunarvinnu. Auk þess hefðu heimilislæknar þörf fyrir sömu virðingu og laun og aðrir sérfræðingar. Þessi hugmyndafræði hefur í raun staðist tímans tönn, er ennþá í fullu gildi, en það er þó full ástæða til að standa vörð um hana og það gerum við m.a. með því að varðveita sögu hennar. Félag íslenskra heimilislækna hefur stigið fyrsta skrefið eins og fram hefur komið til varðveislu sögu heimilislækninga. Það er því ærin ástæða til að hrósa félaginu fyrir framsýni og dugnað enda hefur það sýnt sig á undanförnum áratugum að FÍH hefur unnið brautryðjendastarf í mörgum málum, m.a. kennslu- og gæðamálum, og stutt dyggilega við rannsóknir heimilislækna.

Félagsmenn, þ.e. heimilislæknar Íslands, hafa sýnt mikinn félagsþroska, samheldni og dug í baráttu sinni fyrir uppbyggingu heimilislækninga á Íslandi. Til hamingju, FÍH, með 30 ára afmælið.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica