04. tbl 93. árg. 2007

Hugleiðing höfundar. Einu sinni var læknir. Kristín Steinsdóttir

p02-fig1Þegar ég var að alast upp austur á Seyðisfirði um og eftir miðbik síðustu aldar var í kaupsstaðnum einhleypur maður sem gekk undir nafninu Egill læknir. Vísast var hann einhvers son en það skiptir ekki máli fyrir þessa sögu. Starfsheitið þjónaði sem eftirnafn. Egill læknir var Egill læknir og annað var aukaatriði. Hann var lengi eini læknirinn árið um kring en fór stundum til útlanda á vetrum. Fékk hann þá einhvern fyrir sig á meðan og var sólbrúnn og sællegur er heim kom. Sagt var að hann sigldi á skipi um suðurhöf á meðan við sátum í skugga hárra fjalla og biðum sumars. Þetta með öðru skapaði honum sérstöðu í plássinu.

Er skemmst frá því að segja að Egill skar upp og saumaði saman, fjarlægði brunnar tennur (þegar tannlækni vantaði), setti saman brot, tók á móti börnum, bólusetti og gerði annað sem til féll. Sjálfsagt voru honum mislagðar hendur í einhverju, stundum illilega en hann var læknirinn okkar í blíðu og stríðu. Hann bragðaði ekki áfengi á þorrablóti í vikunni áður en yngsti bróðir minn (Stefán læknir á Hvolsvelli) fæddist. Sagði að frú Arnþrúður ætti von á sér og bjóst við erfiðri fæðingu.

Þessi heiðursmaður bjó í gamla Bjarka, húsinu sem Þorsteinn Erlingsson skáld og ritstjóri reisti árið 1897. Húsinu sem Seyðfirðingar rifu niður sjötíu árum síðar ásamt trjágróðri öllum og malbikuðu yfir því þá vantaði bílastæði. Sá gjörningur fór fram skömmu eftir að þeir ruddu gamla Apótekið frá 1890 en það var með upphaflegum innréttingum. Þá var síldarævintýrið mikla að hefjast og athafnamenn sunnan úr Reykjavík vantaði bragga undir síldarstúlkur.

Í Bjarka tók Egill læknir á móti sjúklingum á stofu áratugum saman. Og þá er ég komin að meginmálinu. Þegar sjúklingurinn gekk inn byrjaði læknirinn að tala. Hann sagði ekki bara einu sinni hvað væri að heldur mörgum sinnum. Þegar sá sjúki fór út var hann með tilfellið á tæru. Sumir sögðu reyndar að karlinn væri of fljótur á sér. Hvað sem öðru leið lét hann mann ekki velkjast í neinum vafa.

Oft verður mér hugsað til Egils þegar ég sit fyrir framan lækni sem þegir lon og don en hefur þá nærveru að ég fer að tala í sótthitakenndu fári í von um að hann taki eftir mér. Fái hann til að skilja að ég sé komin út af ákveðnu erindi en ekki bara til að horfa á hann sitja á stólnum hummandi. Stundum talar hann líka einhvern latínublending en hann hjálpar mér lítið. Ég man aldrei til að Egill læknir segði neitt á útlensku. Samt hlaut hann að kunna hana, maðurinn margsigldur í suðurhöfum. Hann amaðist heldur ekki við okkur krökkunum.

Egill kom upp í hugann þegar ég fór með son minn til sérfræðings fyrir allmörgum árum. Við urðum að gera okkur ferð til Reykjavíkur með Akraborg og hafa yngri bróður hans með. Ef ég man rétt var haugasjór á leiðinni yfir Flóann en drengirnir þokkalega sprækir eftir volkið. Er skemmst frá því að segja að læknirinn, eldri herra, skoðaði sjúklinginn samanbitinn. Síðan reif hann upp hurðina og vísaði honum út ásamt litla bróður en ég sat eftir á stólnum, hlustaði á hann humma og tala sinn latínublending á meðan hann skrifaði aðskiljanlega lyfseðla.

Í dag hefði ég lamið hann. Svo hefði ég skellt hurðum og kannski rifið húsið líka. En þarna sat ég og barðist við að vera kurteis um leið og ég bað til Guðs að drengirnir mínir yrðu enn í byggingunni þegar ég kæmi út. Í þessu sambandi er rétt að komi fram að strákarnir voru ekki óþægari en gengur og gerist. Annar er í dag tölvunarfræðingur, hinn lögfræðingur og talið sama og sannað að þeir gátu setið kyrrir. Ég er að vona að það sé einsdæmi að læknir hendi sjúklingi sínum út í miðju kafi . . .

Svo var það hér á dögunum að ég átti að koma í eftirlit á Borgarspítalann sem einu sinni var. Þar tók á móti mér ungur, brosmildur læknir sem byrjaði að spjalla áður en ég settist niður. Mál hans var ekki áberandi latínuskotið, hann var heldur ekki að flýta sér en útskýrði allt vel. Þá gerðist það. Ég var ekki lengur á efri hæð í gímaldi inni í Fossvogi heldur komin í Bjarka milli hárra fjalla austur þar. Og gamla öryggiskenndin kom yfir mig. Ég fór heim með fullvissuna um að allt yrði þetta í lagi.

Við næstu gatnamót rifjaði ég upp hlýjar móttökur karla og kvenna á slysa- og bráðadeild í ársbyrjun. Flestir voru læknarnir ungir. Gat verið að þeir kynnu minni latínu en hinir eða höfðu þeir farið á samskiptanámskeið? Ég hafði ekki komist að niðurstöðu þegar langdregið flaut bílsins fyrir aftan vakti mig upp úr hugleiðingunum og ég slapp yfir á grænu ljósi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica