02. tbl 92. árg. 2006

Umræða og fréttir

Gudmanns Minde

Árið 2006 verða liðin 150 ár frá því fyrsta skurðaðgerðin í svæfingu var gerð á Íslandi. Sá merki atburður átti sér stað á Akureyri, nánar tiltekið í Aðalstræti 14 eða Gudmanns Minde. Þetta var aðeins 10 árum eftir að fyrsta svæfingin í heiminum var framkvæmd á Massachusets General sjúkrahúsinu í Boston í Bandaríkjunum. Eins og þar var þetta stórt framfaraskref. Nú var hægt að fara í skurðaðgerð án þessa að upplifa sársauka!

Skurðlæknirinn sem framkvæmdi aðgerðina hét Jón Finsen. Sjúklingurinn var 15 ára stúlka með sull á baki. Jón notaði klóróform til að svæfa hana og aðgerðin gekk vel. Því miður hefur nafn stúlkunnar ekki fundist þrátt fyrir ítarlega leit. Aðgerðarlýsing er heldur ekki til. Mjög líklegt er að Jón hafi framkvæmt þessa aðgerð á heimili sínu að Aðalstræti 14 á Akureyri.

Aðalstræti 14, eða Gudmanns Minde eins og það er kallað, á sér merka sögu. Það er byggt árið 1835 og er eitt af elstu tvílyftu íbúðarhúsum á landinu. Baldvin Hinriksson Skagfjörð fékk úthlutað lóð fyrir húsið 1827. Hann var fyrstur manna til að fá útmælda lóð í fjörunni á Akureyri. Herbergjaskipan var nýstárleg og gluggaskipan önnur en menn áttu að venjast á þeim tíma. Þar eru upprunaleg hlaðin eldstæði á báðum hæðum en það var einsdæmi á þeim tíma. Eggert Johnsen fjórðungslæknir í Norðlendingafjórðungi keypti húsið en ekkja hans seldi það Jóni Finsen sem bjó í því til 1872. Friðrik C.M. Gudmann keypti svo Aðalstræti 14 og gerði það upp fyrir eigið fé. Hann byggði þar einnig fjós og hlöðu. Þetta kostaði hann 10.000 dali. Hann sá að mikil þörf var á þjónustu við sjúklinga á Akureyri og færði Akureyrarbæ húsið að gjöf 5. nóvember 1873. Það var látið heita Gudmanns Minde til heiðurs gefandanum og var rekið sem spítali frá 1873.

Varðveislugildi hússins Gudmanns Minde er óumdeilanlegt. Þetta er minnisvarði um kannski merkasta atburðinn í sögu skurð- og svæfingalækninga á Íslandi. Á undanförnum árum hefur farið fram mikil vinna til viðgerðar og varðveislu á þessu merka húsi. Það hefur verið friðað og margir lagt til fjármagn og vinnu við endurbætur þess, meðal annars Læknafélag Íslands. Enn er þó nokkuð langt í land að það verði tilbúið til notkunar og sýningar. Með samstilltu átaki vonumst við til að ljúka megi verkinu á næstu tveimur árum.

Hér að ofan er Friðrik C.M. Gudmann en til hægri er Jón Finsen sem gerði fyrstu skurðaðgerð með svæfingu á Íslandi fyrir réttum 150 árum. Gudmanns Minde er hvíta húsið með bláa þakinu á myndinni hér að neðan.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica