07/08. tbl. 90.árg. 2004

Lyfjamál 127

Þunglyndislyf enn og aftur

Enn vex notkun þunglyndislyfja í flokki sér­hæfðra serótónín endurupptökuhemla (N06AB) og halda landsmenn enn tryggri forystu í þeim efnum meðal Norðurlandaþjóða. Samkvæmt uppgjöri frá Tryggingastofnun ríkisins (TR) var ávísað 5.420.611 dagskömmtum þessara lyfja á síðasta ári, en það magn dugir 14.851 manni til meðferðar alla daga ársins. Verðmætið nemur um 880 milljónum króna.

Þetta eru kannski ekki nýjar fréttir fyrir marga, en nú er nýtt í gögnum TR að unnt er að skoða ald­urs­­dreif­ingu og kyn notenda og kemur þá í ljós að 321.606 dagskammtar, eða 5,7% notkunarinnar, er hjá börnum og unglingum 19 ára eða yngri. Þetta sam­svar­ar því ársnotkun fyrir 880 börn og unglinga.

Nú eru fimm lyf í flokki N06AB á markaði hér, flúoxetín, cítalópram, paroxetín, sertralín og escítal­ópram. Aðeins eitt þessara lyfja, sertralín, hefur ábend­ingu fyrir notkun hjá börnum og unglingum, það er við þráhyggju/áráttusýki 6-17 ára. Öll hin hafa í barnaábendingu annaðhvort: ekki ætlað börnum, ekki ráðlagt innan 18 ár, eða: upplýsingar um reynslu og áhrif skortir.

Notkun sertralíns á aldursbilinu 0-19 ára var 135.858 dagskammtar sem samsvarar ársnotkun fyrir 372.

Segjum að sertralín ávísanirnar séu í lagi. Þá standa eftir 185.748 dagskammtar. Það er með öðrum orðum hugsanlega verið að gefa 509 börnum og unglingum daglega flúoxetín, cítalópram, paroxetín og escítalópram, lyf sem alls ekki eru skráð með ábendingar fyrir börn.

Í Danmörku veldur það nú vaxandi áhyggjum að 2830 börn undir 17 ára aldri fengu þunglyndislyf á síðasta ári en Danir eru tuttugu sinnum fleiri en við. Væri notkun okkar í takt við notkun þeirra væru hér um 140 börn og unglingar í meðferð en ekki 880.

Mynd 1. SSRI-geðdeyfð­ar­lyf á Norðurlöndum (NO6AB).

Mynd 2. NO6AB - Hlutfallsleg skipting á DDD eftir aldri.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica