Umræða fréttir
  • Tafla I

Lyfjamál 117. Sjúkdómsvæðing?

Ársskýrsla International Narcotics Control Board (INCB) um framleiðslu og notkun ávana- og fíkniefna í heiminum árið 2001 er nýkomin út. INCB er sú stofnun Sameinuðu þjóðanna sem annast eftirlit með framleiðslu og verslun með ávana- og fíkniefni samkvæmt alþjóðasamningum um þau efni (Single Convention on Narcotic Drugs 1961, Convention on Psychotropic Substances 1971 og United Nations Convention against Illicit Traffic in Narcotic Drugs and Psychotropic Substances 1988).

Eitt af því sem vekur athygli í skýrslunni er hin gríðarlega aukning í framleiðslu og notkun metylfenídats. Árið 1990 var heimsframleiðslan 2,8 tonn en náði hámarki 1999 þegar framleidd voru 19,1 tonn. Árið 2001 var framleiðslan 15 tonn. Notkunin síðustu ár endurspeglar þó ekki þessa minnkun í framleiðslu því ársnotkun jókst úr 11,6 tonnum í 15,4 á árunum 1997-2001.

Notkunin er langmest í Bandaríkjunum, eða meira en 80% af heimsnotkun árið 2001. Árið 2001 voru notuð 7 kg hér á landi en 10,5 kg á síðasta ári. Aukningin heldur því enn áfram. Íslendingar voru árið 2001 númer þrjú í röðinni yfir mestu notendur lyfsins á eftir Bandaríkjamönnum og Svisslendingum (sjá töflu).

Meginnotkun lyfsins er til meðferðar á misþroska (Attention deficit disorder, ADD eða attention deficit hyperactivity disorder, ADHD) hjá börnum og unglingum. Ef við gerum ráð fyrir því að svo sé einnig hér á landi og að meðferð fari að jafnaði fram á aldrinum 5-15 ára þá er svo komið á síðasta ári að 2,3% barna á þeim aldri eru í meðferð að staðaldri. Þessi þróun er umhugsunarverð með tilliti til þess hve hröð hún er og að langtímaafleiðingar eru enn óvissar.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica