Umræða fréttir

Uppbygging Landspítala

Í Læknablaðinu í maí 2003 er úttekt Þrastar Haraldssonar á stöðu heilbrigðismála fyrir kosningar. Þröstur furðar sig á lítilli umræðu um þennan fjárfreka málaflokk. Hann skoðar stefnuyfirlýsingar stjórnmálaflokka og greinir frá ummælum þeirra frambjóðenda sem tóku þátt í umræðum á fundi læknaráðs Landspítala. Ennfremur vitnar hann í viðtöl við fjóra lækna sem birst hafa í blaðinu. Eitt sem rætt hefur verið af þessum aðilum er framtíðar uppbygging Landspítala við Hringbraut. Undirritaður telur sig þekkja töluvert til aðdraganda þeirra mála frá starfi í þróunarnefnd spítalans. Nú er er ráðherraskipuð nefnd að vinna að því máli og semja við Reykjavíkurborg um skipulag og færslu Hringbrautar til undirbúnings framkvæmda þar.

Þær hugmyndir sem nú eru á borðinu munu kosta gríðarlegt fjármagn. Lauslega áætlað er sennilega verið að tala um 50-60 milljarða króna. Í raun er verið að byggja nýjan spítala frá grunni. Benda má á reynslu Norðmanna í þessu efni. Ákvörðun var tekin þar um að byggja nýjan spítala í Osló frá grunni. Reiknað var með byggingum að flatarmáli 120-130 þúsund fermetra. Kostnaður áætlaður 27 milljarðar íslenskra króna. Byggingarnar hafa stækkað og kostnaður hefur meira en tvöfaldast. Ekki var hægt að taka neitt af húsunum í notkun fyrr en allt var tilbúið. Fjármagn tafði ekki en tíminn sem þetta tók var 12 ár.

Í þróunarnefnd spítalans kom fram önnur hugmynd frá danska ráðgjafafyrirtækinu Ementor. Grundvöllur þeirrar hugmyndar var að nýta eins mikið af núverandi byggingum spítalans og mögulegt er. Til þess að ná fram hagræðingu í rekstri töldu ráðgjafarnir nauðsynlegt að sameina líkamlega bráðaþjónustu á einum stað. Að vel athuguðu máli var talið að húsið í Fossvogi væri mun hentugra til að byggja við. Líta ætti á lóðir við Hringbraut og í Fossvogi sem eina lóð og geðdeild yrði áfram við Hringbraut ásamt endurhæfingu, langlegudeildum og ýmissi rannsóknastarfsemi. Byggingamagn í Fossvogi þyrfti yrði mun minna og kostnaður því aðeins brot af því sem núverandi hugmyndir munu kosta. Viðbyggingar í Fossvogi myndu ekki trufla starfsemina þar nema óverulega á meðan á framkvæmdum stæði og taka mætti þær í notkun eftir því sem þær kláruðust. Auk þess væri staðsetning lóðar í Fossvogi mun betri með tilliti íbúa höfuðborgarsvæðisins. Þessi tillaga hefur aldrei verið skoðuð nánar!

Þegar menn velta fyrir sér framtíð spítalans verða þeir að sjálfsögðu að taka tillit til þess sem er að gerast í þjóðfélaginu. Miðað við þær framkvæmdir sem nú hafa verið ákveðnar er ljóst að stórframkvæmd á við 100 þúsund fermetra byggingar við Hringbraut getur ekki orðið á dagskrá næsta áratuginn.

Undirritaður hefur áður látið þá skoðun í ljósi að færsla Hringbrautar sé sóun á fjármunum. Ákvörðun um byggingu barnadeildar við Hringbraut var líka röng.

Þar er því eindregið hvatt til að tillaga Ementor verði tekin til skoðunar að nýju svo að menn geti áttað sig á þeim möguleikum sem í henni felast.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica