Umræða fréttir
Broshornið 36: Af spaghettíi og gangráðum
Einn að norðan
Móðir kom með son sinn þriggja ára til læknis. Eftir skoðunina sátu mæðginin handan borðsins og drengurinn í kjöltu móður sinnar. Læknirinn settist í stól sinn, grúfði sig yfir blað á borðinu og tók að skrifa án afláts. Drengnum varð starsýnt á lækninn. Það eina sem heyrðist var skriftarhljóð frá pennanum. Loks var drengnum öllum lokið og spurði móður sína: "Mamma, af hverju vex bara hár í andlitinu á manninum en ekkert á hausnum á honum?"Annar að norðan
Sex ára strákur kom með móður sinni til heimilislæknisins sem var með þéttari mönnum þótt víðar væri leitað. Sá var með öðrum orðum feitur og gerði lítið til að leyna því. Læknirinn þurfti að mæla hæðina á drengnum og stillti honum upp undir hæðarmæli á vegg. Drengurinn mældi hins vegar lækninn út upp og niður nokkrum sinnum og á þverveginn líka. Þegar honum fannst ístra læknisins ganga fullnálægt sér gat hann ekki orða bundist: "Ég held að þú þurfir að fá þér bumbubana."Spaghettí
Fyrir mörgum árum hélt læknir fram hjá konu sinni með hjúkrunarfræðingi. Ekki leið á löngu þar til hjúkkan varð ófrísk. Læknirinn gat ekki hugsað sér að upp kæmist um ótrúnað hans. Hann lét því viðhaldið hafa fjárfúlgu og bað hana að fara til meginlands Evrópu og eiga barnið þar. "Hvernig get ég látið þig vita þegar barnið fæðist?" spurði hjúkkan. "Sendu mér bara póstkort og skrifaðu "spaghettí" á það. Ég skal svo borga allan brúsann."Konan flaug til Ítalíu og segir ekki frekar af ferðum hennar.
Sex mánuðum seinna hringir eiginkona læknisins á stofuna til maka síns og segir: "Elskan, þú fékkst svo undarlegt póstkort í dag. Það kemur frá Ítalíu, en ég fæ enga meiningu í það sem á því stendur." "Hafðu engar áhyggjur af því, ástin mín. Ég skoða kortið þegar ég kem heim."
Læknirinn kom heim um kvöldmatarleytið, las kortið og féll að því búnu í gólfið með hjartaslag. Sjúkrabíll kom á staðinn og flutti lækninn með forgangi á sjúkrahús. Eiginkonunni var að sjálfsögðu mjög brugðið og einn úr áhöfn bílsins varð eftir til að hugga hana. Hann spurði hana hvað gæti hafa orðið maka hennar um megn. Konan tók upp póstkortið og las: "Spaghettí, spaghettí, spaghettí. Tvö með pylsu og kjötbollum og eitt án."
Ófrískar konur
Eiginkona kvensjúkdómalæknisins er eina konan í heiminum sem verður himinlifandi þegar bóndi hennar kemur heim að loknum vinnudegi og segir: "Jæja, elskan, heldurðu að mér hafi ekki tekist að gera aðra konu ófríska í dag!"Óþolandi húmoristi
Sjúkraliði kom með matarbakka til sjúklings sem lá á spítala og hafði lofað aðstandendum sínum að "hlæja sig aftur til bata". Sjúkraliðinn lét sjúklinginn einnig hafa þvagprufuglas og bað hann að fylla það næst þegar honum yrði mál. Sjúklingurinn var með endemum hugmyndaríkur að eðlisfari og hellti því eplasafa sem var á matarbakkanum í þvagprufuglasið.
Þegar læknirinn, ung kona, kom nokkru síðar að vitja sjúklingsins bar hún glasið upp að ljósinu og sagði: "Það er eitthvað undarlegur litur á þessu þvagi. Er allt í lagi með þig?"
"Lofðu mér að sjá," sagði sjúklingurinn og tók glasið. "Þetta er hálf skrítið. Það er best að ég renni þessu í gegn aftur" og drakk úr glasinu í einum teyg.