Umræða fréttir

Broshornið 35. Af húðflúri og læknaskrift

Alveg áttaður?

Starfsfólkið á öldrunardeildinni var farið að gruna að Jón gamli væri minna með á nótunum en hans var venja. Efasemdir starfsmanna jukust til muna þegar komið var að Jóni á stofugangi í úthverfum sloppnum og með krummafót. Samúel læknir ákvað að reyna að komast nær því hversu vel áttaður Jón væri. Eftir stofuganginn gekk Samúel til gamla mannsins og sagði: "Sæll vertu, Jón minn. Getur þú sagt mér hvar þú ert staddur núna?" "Þetta finnst mér nú undarleg spurning frá manni sem er á staðnum," sagði Jón og gekk burt.





Í kvöldverðarboði

Tveir skurðlæknar voru ásamt mökum sínum og fleira fólki í matarboði. Á boðstólum var lambalæri og tilheyrandi lífrænt ræktað grænmeti. Gestgjafinn skar lærið í sneiðar og var drjúgur með sig. "Jæja, hvernig finnst ykkur mér takast upp við að skera lærið?" spurði hann, "og það fyrir framan þessa áhorfendur."

"Ekki sem verst," sagði annar skurðlæknirinn. "Reyndu nú að koma því saman aftur."





Húðflúruð með botnlangabólgu

Ung kona með fjólublátt hár og húðflúr hér og þar um líkamann kom á bráðamóttökuna að næturlagi og bar sig illa vegna kviðverkja. Allt benti til þess að hún væri með botnlangabólgu og ákveðið var að skera hana upp án tafar.

Þegar verið var að því undirbúa konuna fyrir aðgerðina kom í ljós að kynhárin voru græn að lit. Fyrir ofan hárin var tattúerað "Ekki troða á grasinu". Eftir aðgerðina skrifaði læknirinn á umbúðirnar: "Afsakaðu, en ég varð að slá grasið."





Í augnskoðun

Augnlæknirinn benti á efstu röðina á sjónprófunarspjaldinu og sagði: "Viltu lesa þetta fyrir mig."

"Þú verður víst að lesa það fyrir mig," sagði sjúklingurinn sem var kominn á efri ár. "Getur það verið að þér sé ekki ljóst að ég kem til þín af því að ég sé svo illa?"





Hjá tannlækninum

Konan er sest í stólinn hjá tannlækninum. Hann gerir sig líklegan til að hefjast handa og hallar sér fram þegar hann finnur að konan grípur hann hreðjataki. "Heyrðu mig, frú mín, viltu vera svo væn að spenna greipar."

"Já," sagði konan, "en við ætlum að fara voðalega varlega svo við meiðum ekki hvort annað, er það ekki?"





Hvort er verra?

Lækninum fannst auðveldara að eiga samskipti við eldri konu sem heyrði ákaflega illa með því að skrifa á blað það sem hann vildi að hún skildi. Dag nokkurn kom hún á stofuna til að fá niðurstöður úr rannsóknum. "Læknir minn góður, þú mátt ekki móðgast við mig, en ef það er eitthvað sem ég þarf að vita þá bið ég þig fyrir alla muni að fá ritarann þinn til að skrifa það á blað fyrir mig. Í einlægni sagt held ég að skriftin þín sé verri en heyrnin mín."





Of fljótur á sér

Ung kona kom með kornabarn á stofu til læknis.

"Það er eitthvað sem amar að þessum dreng," sagði konan, "í stað þess að þyngjast hefur hann lést um fimmhundruð grömm á einni viku."

Læknirinn skoðaði barnið, lagði það svo frá sér og byrjaði að hneppa frá skyrtu konunnar. Síðan tók hann til við að kreista brjóst hennar þangað til hún hafði unnið bug á undrun sinni og geðshræringu og öskraði: "Hvað ertu eiginlega að gera, maður?"

"Sjáðu nú til, góða mín," sagði læknirinn og virtist hvergi banginn. "Þetta barn er vannært og ég er einungis að ganga úr skugga um hvort það sé nóg mjólk í brjóstunum þínum."

"Þú ert ekki að kreista réttu brjóstin, lagsi, því systir mín á barnið."





Streita og nöldur

Mjög stressaður náungi kom í eftirlit á stofuna til heimilislæknisins með eiginkonu sinni sem nöldraði út í eitt. Eftir að hafa skoðað manninn skrifaði læknirinn upp á kröftugar róandi töflur.

"Hve oft á ég að taka þessar?" spurði maðurinn.

"Við skulum byrja með eina á sex klukkustunda fresti. En þær eru ekki handa þér heldur konunni," sagði læknirinn og var feginn að viðtalinu var lokið.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica