Umræða fréttir

Broshornið 34: Óbyggðalækningar og p-pillur handa ömmu

Óþolinmóður með kvef

"Ég þoli ekki að vera með kvef. Ég hata það að vera með kvef. Þú verður að gefa mér eitthvað við þessu, annars tapa ég vitinu," sagði Loftur við Áslák lækni.

"Eins og þú veist vel, Loftur minn, og við höfum margrætt um áður, þá er engin lækning til við kvefi," sagði læknirinn.

"En ég er að brjálast. Þú verður að gera eitthvað."

"Allt í lagi. Ég veit hvað þú getur gert," sagði læknirinn.

"Farðu í kalda sturtu, vefðu svo handklæði um mittið á þér og vertu þannig úti í klukkutíma."

"Ertu alveg frá þér?" spurði Loftur, "þá fæ ég lungnabólgu."

"Já, ég veit," sagði læknirinn, "en ég get gefið þér lyf við henni."





Úr axlarlið á hálendinu

Jórunn hjúkrunarfræðingur vann á virkjunarsvæði Þjórsár og Tungnaár sumarið 1982 þegar óskað var eftir því að hjúkrunarfræðingur héldi strax af stað með sjúkrabíl til móts við bifreið sem kom frá Kvíslárveitu með slasaðan mann. Hann hafði hrunið niður grjótgarð og steinn hafði gengið upp í hægri holhöndina. Sagt var að maðurinn væri mjög illa haldinn og talinn alvarlega slasaður.

Um það bil hálfri klukkustund síðar mættust bílarnir. Hjúkrunarfræðingurinn gerði allt klárt aftur í sjúkrabílnum til að taka á móti hinum slasaða og opnaði meðal annars fjórar bráðatöskur þannig að allur útbúnaður væri innan seilingar. Síðan fór hún út úr sjúkrabílnum og mætti hinum slasaða sem kom gangandi úr hinum bílnum. Maðurinn bar sig illa og kvaðst vera að líða út af. Jórunn brást snöggt við og lagði sjúklinginn til í körfu í sjúkrabílnum án þess að vera búin að gera sér grein fyrir því hvað amaði að honum. Ekki tókst betur til en svo, þegar hún hugðist skoða sjúklinginn þar sem hann lá á bakinu í körfunni, að hún rak sig í eina töskuna sem stóð opin og steyptist við það beint ofan á sjúklinginn þannig að nef hennar og enni skall beint á hægri öxlina, þar sem maðurinn var mest kvalinn. Í stað þess að heyra neyðaróp sjúklingsins við þau ósköp sem dundu þarna yfir kom langt "aaaaaaaaa . . . aa" og maðurinn varð allur rórri og líðan hans batnaði til muna. Þá þegar varð ljóst að maðurinn hafði við atgang hjúkrunarfræðingsins smollið í axlarlið á ný. Hann dásamaði meðferðarúrræði hennar og mun eftir þetta ekki hafa velkst í neinum vafa um hvernig slösuðu fólki væri kippt í axlarlið.

Hitastig sjúklings kannað

Læknir var gripinn í bólinu hjá húsfreyju í sveitinni.

"Ég get útskýrt þetta allt saman," sagði læknirinn titrandi röddu. "Ég er bara að mæla hitann hjá konunni." Bóndinn greip til byssunnar. "Ég reikna með því að þú vitir hvað þú ert að gera, læknir," sagði hann og tók varlega í gikkinn. "En þegar þú tekur hitamælinn út aftur þá er eins gott að hann sé úr málmi og gleri."





Öskur á stofunni

"Ertu til í að gera mér greiða," spurði læknirinn sjúklinginn, "og reka upp nokkur ógurleg öskur þannig að undir taki í húsinu?" Sjúklingurinn varð mjög undrandi. "En ég finn hvergi til og mér líður tiltölulega vel." "Það er besta mál fyrir þig en það varðar mig ekkert um. Hefurðu séð fjöldann af fólki í biðstofunni? Þú ert eina von mín til að ég komist í bankann fyrir lokun."





P-pilla fyrir ömmu

Eldri kona kom til læknis og bað hann að skrifa út getnaðarvarnarpillur handa sér. Læknirinn varð vægast sagt undrandi. "Fyrirgefðu, frú mín góð, en ertu ekki orðin áttatíu ára gömul? Hvað ættir þú svo sem að gera við getnaðarvarnarpillur?"

"Ég reikna með því að ég mundi sofa betur ef ég fengi þær," sagði konan.

Læknirinn hélt að konan væri orðin elliær. "Og hvernig í ósköpunum geturðu sofið betur af svona pillum?"

"Ég ætla að blanda þeim saman við ávaxtasafann sem ég gef dótturdóttur minni á hverjum morgni og þá er ég viss um að ég sef betur á nóttunni," sagði konan.





Hreyfing er holl

Foreldrafræðslan var í gangi. Salurinn var fullur af ófrískum konum og mökum þeirra. Leiðbeinandinn náði vel eyrum fólksins og sagði: "Dömur mínar, æfingar eru góðar fyrir ykkur. Ég mæli sérstaklega með því að þið fáið ykkur göngutúra. Og herrar mínir, það mundi alls ekki skaða ykkur að fara út að ganga með konunum ykkar."

Enginn sagði neitt í smástund en svo rétti einn verðandi pabbinn upp hendina og spurði: "Er allt í lagi að hún dragi golfkerru á eftir sér á göngunni?"

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica