Umræða fréttir

Hálfnað verk þá hafið er - klárum það! Ef saman okkar snúa bök, sjá, þá lyftast Grettistök

Í tilefni reyklausa dagsins 31. maí sl. ákvað stjórn félagsins Læknar gegn tóbaki að leita eftir stuðningi lækna til að minna á daginn og tilgang hans. Ekki verður annað sagt en að undirtektir hafi verið frábærar. Við sendum tæplega 1000 kort til allra lækna á Íslandi og af þeim skiluðu sér á þriðja hundrað undirrituð kort til Jóns Kristjánssonar heilbrigðismálaráðherra. Á kortinu var minnt á metnaðarfull markmið heilbrigðisáætlunar alþingis til ársins 2010 um að draga úr reykingum. Ítrekaður var vilji læknisins til þess að stuðla að því í starfi sínu að þessi markmið náist. Jafnframt var því beint til ráðherra að tryggja rétt fólks til reyklauss umhverfis og sérstaklega nefnt að gera þurfi almenn rými á veitinga- og skemmtistöðum reyklaus. Ennfremur var bent á mikilvægi góðra meðferðarúrræða fyrir þá sem vilja hætta að reykja og í því sambandi nefnd "Ráðgjöf í reykbindindi - grænt símanúmer 800 6030 ".

Fátt er líklegra til að fá einstakling til að hætta að reykja en einmitt ábending frá lækni. Einnig er áhrifaríkt að rödd lækna (einstakra og í hópum) heyrist oft og víða, bæði varðandi gamlar staðreyndir og nýjar áherslur í tóbaksvörnum. Þetta vanmeta læknar í tóbaksvarnastarfi sem og öðru forvarnastarfi, t.d. slysavörnum. Það hefur sannarlega áhrif þegar fjórðungur íslenskra lækna sér ástæðu til að senda ráðherra kort og undirstrika áhersluatriði í tóbaksvörnum. Leiðari Morgunblaðsins 7. júlí fjallaði um ábendingar lækna til ráðherra varðandi óbeinar reykingar. Þegar stjórn Lækna gegn tóbaki átti fund með ráðherra rúmlega einum mánuði eftir reyklausa daginn sýndi hann ábendingum þessa stóra læknahóps bæði skilning og áhuga. Greinilegt var að hann og samstarfsfólk hans vill vinna ofangreindum atriðum brautargengi. Á fundinum fögnuðum við því að Ísland var eitt af fyrstu löndunum til að undirrita rammasamning WHO um takmörkun tóbaksreykinga. Að mestu snerust umræðurnar þó um óbeinar reykingar, skaðsemi þeirra og mikilvægi þess að draga úr þeim. Bent var á að frændur okkar Norðmenn hafa ákveðið með lagasetningu að næsta vor verði allur veitningageirinn (veitingahús, hótel, kaffihús, barir o.s.frv.) þar í landi reyklaus. Höfuðrök Norðmanna að baki þessu eru að tryggja beri starfsfólki heilnæmt andrúmsloft við störf sín (líka þeim sem ekki reykja). Hvort alþingi Íslendinga samþykkir lög í þessum anda á komandi vetri er óvíst. Hitt er ljóst að við læknar höfum þarna verk að vinna og af undirtektunum í vor að dæma er greinilegt að nægur vilji er til að vinna það verk. Viðmælendur okkar geta verið margir; almenningur, starfsfólk kaffi- og veitingahúsa, stéttarfélög, vinnuveitendur, sveitarstjórnarmenn, þingmenn o.s.frv. Undanbragðalaust en heiðarlega þarf að upplýsa um skaðsemi óbeinna reykinga svo að skilningur vaxi á því að í raun er þetta vinnuverndarmál. Það er drjúgt að vinna maður á mann, ekki síst á grundvelli vináttu og kunningsskapar, og munum: dropinn holar steininn. Fyrir hönd stjórnar Lækna gegn tóbaki þakka ég frábærar undirtektir á liðnu vori og hvet ykkur öll kæru starfssystkin til að íhuga hvernig þið getið unnið reykleysinu enn frekara brautargengi.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica