Umræða fréttir

Læknavakt fyrir sjúkraflug frá Akureyri

Frá miÐjum mars hefur verið starfrækt læknavakt fyrir sjúkraflug á vegum Fjórðungssjúkrahúsins á Akureyri. Við þær aðstæður þegar nauðsynlegt er að læknir fylgi sjúklingi, auk sjúkraflutningamanns, er hægt að fá samband við vakthafandi lækni með aðstoð neyðarlínu eða með því að hringja beint í slökkvistöðina á Akureyri og óska eftir fylgd. Þessi möguleiki er fyrst og fremst hugsaður til að létta vinnu lækna úti í héruðum sem þurfa þá ekki að fylgja sínum sjúklingum sjálfir. Ef hjúkrunarfræðingur þarf að fylgja sjúklingi er það eftir sem áður hlutverk sendanda að útvega hann.

Hlutverk þessara lækna er fyrst og fremst sjúkraflutningur og því mikilvægt að sjúklingur verði samt sem áður vel undirbúinn fyrir flug af hálfu heimamanna og er sjálfsagt að ráðfæra sig við vaktlækni sjúkraflugs og/eða þann lækni sem tekur við sjúklingi á áfangastað.

Aðdragandi læknavaktarinnar er í stuttu máli sá að ráðuneytið hafði þegar ákveðið að þessi vakt yrði á Akureyri um leið og miðstöð sjúkraflutninga fyrir Suð-austur-, Austur- og Norðurland hefði aðsetur á sama stað. Í janúar var tekin ákvörðun um að láta á það reyna hvort hægt væri að manna slíka vakt. Margir voru svartsýnir á að það tækist þar sem flestir hér ganga tví- til þrískiptar vaktir og fæstir tilbúnir til að bæta við sig meiri vinnu.

Áhugi lækna almennt hér á Akureyri fyrir því að þessi þjónusta yrði veitt var mikill og með sameiginlegu átaki FSA og Heilsugæslunnar, unglækna og "eldri" sérfræðinga var hægt að ná saman 24 læknum sem gátu hugsað sér að taka vaktir. Þessir læknar eru með ólíka menntun og fóru svo til allir á námskeið í febrúar og byrjun mars til undirbúnings. Um var að ræða fjögurra daga þjálfun sem var þrískipt. Byrjað var á sérhæfðri endurlífgun, bæði bóklegri og verklegri. Þá tók við námskeið í fyrstu hjálp á slösuðum, flutningi þeirra og meðferð. Að lokum komu allir í heimsókn á svæfingadeild FSA til að rifja upp gömul handbrögð sem voru greinilega vel þjálfuð, ef til vill orðin örlítið stirð eftir áratuga notkunarleysi en alls ekki gleymd.

Gert er ráð fyrir að þessi vakt verði mönnuð að miklu leyti af yngri læknum en þeir eldri verða tilbúnir að taka vaktir ef þörf krefur. Ef þessi læknavakt verður áfram er stefnt að því að allir nýir aðstoðarlæknar fái strax að hausti svipaða þjálfun og veitt var á námskeiðinu á dögunum. Um leið gefst tækifæri fyrir hina reyndari að rifja upp.

Enn er of snemmt að segja til um hvernig þetta reynist. Læknar hafa aðeins farið með í örfá flug og í einhver skipti hefur ekki verið tiltæk flugvél á Akureyri til að fara í sjúkraflug þegar um var beðið. Það er þó von okkar að þessi vakt verði til að létta vinnu lækna á landsbyggðinni sem geta fengið aðstoð við flutning veikustu sjúklinganna og sloppið við margra daga fjarvistir að heiman.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica