Umræða fréttir

Broshorn 22: Af sonum lækna og fleygum orðum

Miðaldra hjón komu á stofu til heimilislæknisins sem þekkti þau bæði mæta vel. Konan hafði átt í langvinnum veikindum og eiginmaðurinn var stoð hennar og stytta og fylgdi henni ávallt til læknisins. Konan stólaði reyndar algjörlega á makann á leið sinni til betri heilsu.

"Jæja, hvernig hefur gengið síðan við sáumst síðast?" spurði læknirinn. Konan horfði á bónda sinn og spurði: "Hvernig hefur gengið?" Þá færðist bros yfir andlit allra þriggja við borðið og læknirinn sagði við manninn: "Tókstu eftir því hvernig hún spurði þig hvernig hefði gengið?" "Já," sagði maðurinn og kímdi. Þá var röðin komin að frúnni. "Ég sé nú svo sem um eitt og annað á heimilinu. Það var til dæmis um daginn þegar við hjónin fórum saman í herrafataverslun Guðsteins á Laugaveginum. "Áttu til peysu á þennan mann?" spurði ég og eiginmaðurinn stóð við hliðina á mér. Áður en ég vissi af spurði afgreiðslumaðurinn mig: "Hvaða lit vill hann?""



Áhyggjuefni

Það er einkum tvennt sem veldur manni áhyggjum varðandi lækna; í fyrsta lagi skrifa þeir út lyfseðla á latínu og í öðru lagi er latína tungumál sem enginn talar eða notar.



Af læknissonum

Við kvöldverðarborðið var verið að ræða um fyrirtíðaspennu. Þátttakendur í umræðunni voru eiginkona læknisins og dæturnar 17 og 23 ára, en auk þeirra voru við borðið pabbinn og sonurinn 15 ára. Eftir drykklanga stund og algjöra þögn feðganna spurði pabbinn: "Hvað kannt þú um tíðir, sonur sæll?" "Ég veit nú eitt og annað um nútíð og þátíð," svaraði drengurinn.



Fimmtán ára sonur læknis og hjúkrunarfræðings dó aldrei ráðalaus. Í lok kynfræðslunnar í skólanum var skriflegt próf þar sem hann gat auðveldlega svarað flestum spurningunum. Þegar kom að síðustu spurningunni: "Hvenær hafa konur egglos?" var drengurinn ekki alveg með svarið á hreinu. Frekar en að svara út í hött skrifaði hann: "Annan hvern fimmtudag klukkan eitt eftir hádegi."





Fleyg orð

"Eina leiðin til að halda heilsu er að borða það sem þig langar ekki í, drekka það sem þér þykir vont og aðhafast það sem þú ættir að forðast."

(Mark Twain)



Vertu á varðbergi við lestur heilsubóka. Þú gætir dáið úr prentvillu.

(Mark Twain)



Ein fremsta skylda læknisins er að kenna fólki að nota ekki lyf. Löngunin til að taka lyf er ef til vill það sem helst skilur á milli manna og dýra.

(Sir William Osler)



Læknirinn minn skipaði mér að hætta að borða þannig að gert væri ráð fyrir fjórum í mat, nema auðvitað ef þrír aðrir sætu við borðið.

(Orson Welles)



Sumt fólk heldur að læknar og hjúkrunarfræðingar geti sett eggjahræru aftur inn í skurnina.

(Dorothy Canfield Fisher)



Þegar stungið er upp á mörgum aðferðum til að lækna sjúkdóm þýðir það að hann sé ólæknanlegur.

(Anton Tékov)



Ekkert er jafn ógnandi fyrir heilsuna og það að passa of vel upp á hana.

(Ben Franklin)



Við verðum veik af því að hugsa alltaf um heilsuna.

(Dr. Lewis Thomas)



Leyndarmálið mikla sem aðstoðarlæknar þekkja og makar þeirra komast að snemma í hjónabandinu en er þó hulið almenningi er að flest allt batnar af sjálfu sér. Flest allt er reyndar orðið betra að morgni.

(Dr. Lewis Thomas)



Það eitt að læknirinn þinn kunni nafn á því sem að þér gengur þýðir ekki að hann viti hvað það er.

(Höfundur óþekktur)



Hamingja er ekkert annað en góð heilsa og lélegt minni.

(Albert Schweitzer)



Hversu oft?

Sálfræðingur hélt fyrirlestur í karlaklúbbi. "Hve margir ykkar njótið ásta með konum ykkar á hverju kvöldi?" spurði hann. Nokkrir réttu upp hendurnar. "En tvisvar í viku?" Fleiri hendur á loft. "Einu sinni í mánuði?" Enn fleiri hendur upp. "Einu sinni á ári?" "Ég, ég," hrópaði maður á aftasta bekk og spratt á fætur. "Af hverju ertu svona ánægður með það, ef ég má spyrja?" sagði sálfræðingurinn. "Það er í kvöld, það er í kvöld."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica