Íðorðapistlar 1-130

056-Skor, kóði, gráða, stigun

Í síðasta pistli var fjallað um heitin skor og kóða. Stungið var upp á að skor yrði notað um þær niðurstöður sérstakrar talningar eða stigagjafar, sem táknaðar eru með enska heitinu score, og að heitið kóði skyldi notað um tákn og táknakerfi (code) til skráningar sjúkdómsgreininga.



Skor

Tekið var dæmi um nýyrðið áverkaskor sem notað skyldi um niðurstöður mats á áverkum slasaðra manna (injuries severity score). Heitið score kemur einnig fyrir í fæðingarfræði og nýburalækningum. Vissir þættir í líkamsstarfsemi nýbura á fyrstu mínútum lífs þeirra, hjartsláttur, öndun, vöðvaspenna, svörun við áreiti og húðlitur, eru metnir til stigagjafar eftir aðferð sem kennd er við svæfingalækninn Virginíu Apgar (1909-1974). Töluleg niðurstaða úr slíkri stigagjöf er nefnd Apgar-score. Gildi eru á bilinu 0-10 og gefa hærri tölurnar til kynna meiri lífsþrótt. Á íslensku má tala um Apgar-skor, nýburaskor eða lífsþróttarskor. Styttri heiti væru þó vel þegin. Í tölfræði koma fyrir heitin raw score, sem nefna má hráskor, og standard score, sem nefna má staðalskor. Rétt er að ítreka að tillaga undirritaðs gerir ráð fyrir að skor sé hér haft í hvorugkyni, það skorið.



Kóði

Af erlendum heitum, sem notuð eru um sjúkdómakóða, má nefna disease code, morbidity code, morphology code og mortality code, sem í beinni þýðingu verða sjúkdóms- eða sjúkdómakóði, sjúkleikakóði, formgerðar- eða meingerðarkóði og loks dánar- eða dánarmeinakóði. Í erfðafræði er talað um genetic code og er þá verið að tákna þær upplýsingar sem kjarnsýra frumunnar ber, ýmist það táknkerfi þriggja núkleótíða sem ræður amínósýrusamsetningu prótína, eða erfðaupplýsingarnar í heild. Í Íðorðasafni lækna er heitið genetic code þýtt með íslenska heitinu erfðalykill og skal síst amast við því. Erfðakóði eða genakóði virðast í fljótu bragði hafa fátt til síns ágætis.



Gráða

Nafnorðið grade og sögnina to grade er ekki að finna í Íðorðasafni lækna. Engu að síður eru þetta mikilvæg hugtök í krabbameinsfræðum. Við vefjarannsókn á krabbameinum er það oft regla að meta æxlisfrumurnar með tilliti til útlits þeirra og líkingar við eðlilegar frumur af sama vefjauppruna. Slík aðgerð nefnist á ensku grading og er hverju æxli þá skipað á eitt af þremur til fjórum stigum mismunandi útlits, grade I, II, III eða IV. Það virðist liggja beint við að nefna þetta gráður eitt til fjögur og aðgerðina gráðun. Enska nafnorðið grade er talið komið úr latínu þar sem gradus merkir þrep eða skref. Það er meðal annars notað um tilgreind stig í ferli breytinga og stig eða stöðu á ákveðnum mælikvarða. Þannig ber einnig að skilja notkun heitisins við mat á útliti krabbameinsfrumna. Gráðurnar fjórar tákna mismunandi stig útlitsbreytinga hjá illkynja æxlisfrumum, þannig að á hæstu gráðu eru krabbmein með mjög afbrigðilegum og óþroskuðum frumum, sem að öðru jöfnu hafa hvað verstar horfur. Krabbameinsmeðferð tekur oft mið af slíkri gráðun.



Stigun

Í krabbameinsfræðum koma einnig fyrir hugtökin stage og staging. Íðorðasafn lækna þýðir nafnorðið stage með íslensku orðunum þrep og stig. Í öðrum orðabókum má finna enn fleiri þýðingar: svið, leiksvið, pall, vinnupall, viðkomustað o.fl. Það virðist hins vegar komin á það nokkur hefð að tala um stig og stigun krabbameina. Stig krabbameinsvaxtar miðast við útbreiðslu meinsins frá upprunastað sínum, til dæmis þannig að fyrsta stigs æxli sé bundið við upprunavef, svo sem slímhúð, að annars stigs æxli sé vaxið djúpt inn í líffærið, þriðja stigs æxli sé vaxið út úr líffærinu og að fjórða stigs æxli hafi sent frá sér meinvörp. Nokkur mismunandi stigakerfi eru þó í notkun og stigin því táknuð með kóða á ýmsa vegu, til dæmis: A-D, 0-IV eða T0-T4,N0-3,M0-2, og verða þau kerfi ekki rakin hér. Stigun er hins vegar sú aðgerð að kanna og tákna útbreiðslu illkynja æxlis með kóða samkvæmt tilgreindu kerfi.

Nauðsynlegt er að ofangreind hugtök: skor, gráða, gráðun, stig og stigun verði tekin inn í Íðorðasafnið.

Lbl 1994; 80: 257

Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica