Íðorðapistlar 1-130

057-Type, typing, group

Ensk-ameríska heitið type er talið komið úr grísku, af typos sem þýða má á nokkra mismunandi vegu, til dæmis sem fyrirmynd, mark, merki eða mót. Í latínu má reyndar finna heitið typus sem þýtt hefur verið með orðunum gerð, tákn, mynd eða ímynd.

Í Íðorðasafni lækna má finna eftirfarandi skýringu á type: gerð. Sameindir, bakteríur, frumur og vefir sem hafa sameiginleg einkenni. Dæmin, sem þar eru tekin um notkun type í læknisfræðilegum heitum, eru tvær gerðir lungnablöðrufrumna, type I og type II cell, og sex gerðir glýkógenkvilla, type I-VI, en ofangreind þýðing á type er þó ekki notuð í þessum dæmum.

Í fljótu bragði tókst undirrituðum ekki að finna önnur dæmi í Íðorðasafninu um notkun type í samsettum heitum, ef frá er talið heitið karyotype. Þar hefur reyndar farið svo að erlenda heitið hefur verið þýtt beint samkvæmt orðhlutum, kjarnagerð, en ekki tekið tillit til þeirra íslensku heita sem komin voru í notkun, litningamynd og litningagerð. Til útskýringar skal það nefnt að karyotype er notað á tvo vegu, annars vegar sem heiti á nákvæmum uppdrætti eða mynd af litningum manns eða dýrs og hins vegar sem heiti á lýsingu á byggingu og fjölda litninganna í ákveðnu tilviki. Sem dæmi má nefna að eðlilegir litningar karlmanns (the normal male chromosomes) eru táknaðir með stöfunum 46,XY, sem er táknleg lýsing á litningagerð hans. Mynd af eðlilegum eða afbrigðilegum litningum, teiknimynd eða ljósmynd, nefnist einfaldlega litningamynd. Litningarnir eru vissulega staðsettir í frumukjarnanum, en heitið kjarnagerð er ekki heppilegt þegar eingöngu er verið að lýsa þeim.



Typus

Sem sérstakt uppflettiorð í Íðorðasafni lækna finnst latneska heitið typus eingöngu í samsetningunni typus sanguinis, blóðflokkur. Í nýrri þýðingu á fósturfræðinni (Nomina embryologica), sem gefin verður út á næstunni, kemur heitið typus meðal annars fyrir í samsetningunni typus dysmorphicus, rangformunargerð, það er að segja tegund vansköpunar. Eflaust má líta svo á að enska heitið type og latneska heitið typus séu samheiti. Í læknisfræðiorðabók Stedmans eru fleiri dæmi um notkun type í samsetningum, svo sem blood type og personality type. Hefð er fyrir heitinu blóðflokkur, en undirrituðum er ekki kunnugt um það hvort slíkt á einnig við um persónuleikagerð.



Typing

Í orðabók Stedmans er einnig að finna typing, sem lýst er þannig: Flokkun samkvæmt gerð (classification according to type). Typing er ekki sérstakt uppflettiorð í Íðorðasafni lækna, en kemur meðal annars fyrir í samsetningunni blood typing, sem er samheiti við aðalheitið blood grouping, blóðflokkun. Þar er einnig komin á föst hefð. Sama má segja um tissue typing, vefjaflokkun, sem ekki finnst þó í Íðorðasafninu. Karyotyping er heiti á þeirri aðgerð, að rannsaka og greina fjölda og byggingu litninganna með skoðun í smásjá eða á smásjármynd, og nefnist litningagreining. Þessi heiti þarf að taka inn í Íðorðasafn lækna.



Group

Síðasta flokkunarheitið, sem undirritaður vildi taka til umfjöllunar í þetta sinnið, er group. Það finnst ekki sem sérstakt uppflettiorð í Íðorðasafninu, en kemur meðal annars fyrir í samsetningunum: Blood group, blóðflokkur; control group, samanburðarhópur og symptom group, einkennaheild. Í fyrrgreindri orðabók Stedmans er heitið skilgreint sem hópur líkra eða skyldra hluta. Fleiri samsetningar má nefna, svo sem elemental group, frumefnahóp; group medicine, hópstarf lækna; group therapy, hópmeðferð; muscle group, vöðvahóp og therapeutic group, meðferðarhóp.

Undirritaður óskar eftir ábendingum frá lesendum um fleiri orð og heiti sem varða flokkun eða röðun í hópa, sem þýða þarf eða taka til samræmingar, og ættu heima í Íðorðasafni lækna.



Lbl 1994; 80(7): 333
Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica